Innlent

Presturinn biðst afsökunar

María Lilja Þrastardóttir skrifar
Húsavík.
Húsavík.
„Ég get ekki tjáð mig um einstök atriði úr okkar samtali því eðli málsins samkvæmt er ég bundinn þagnarskyldu. Ég rengi þó ekki orð hennar," segir Sighvatur Karlsson, sóknarprestur á Húsavík.

Í Kastljósi í gærkvöldi var rætt við Guðnýju Jónu Kristjánsdóttur, sem var nauðgað á Húsavík árið 1999 þegar hún var sautján ára. Málið setti bæjarfélagið á annan endann og skiptust bæjarbúar í fylkingar ýmist með eða á móti gerandanum sem þó var dæmdur sekur. Í viðtalinu greinir Guðný Jóna frá því hvernig sumir í bænum hafi ýjað að því að hún ætti ekki að kæra. Þar með talinn sóknarpresturinn Sighvatur.

Í samtali við Fréttablaðið harmar hann upplifun Guðnýjar Jónu af þeirra samskiptum og segir að sér hafi gengið gott eitt til.

„Það var fyrst og fremst vilji minn að sýna henni stuðning. Hafi hún ekki upplifað hann þá bið ég hana afsökunar. Ég er þeirrar skoðunar að rannsaka beri allt ofbeldi."

Aðspurður hvort það stangist ekki á við orð Guðnýjar Jónu segir hann það mögulega vera svo.

„Ég man bara lítið eftir þessu samtali og ég veit því ekki af hverju ég sagði þetta. Það er ekki til neins að velta þessu upp. Minn vilji var að sýna meintum geranda stuðning."

Sighvatur tekur fram að það hafi hann gert með því að reyna að koma í veg fyrir birtingu nafnalistans. Hann segir jafnframt að í öllum málum sé það mikilvægt að prestur gæti hlutleysis og í þessu máli líka gagnvart „meintum" geranda.

„Ég trúi á mátt fyrirgefningarinnar í úrvinnslu allra mála," segir Sighvatur. Spurður nánar út í þau orð sín og hvort honum finnist sem Guðnýju Jónu sé skylt að fyrirgefa nauðgara sínum segist hann trúa að kærleikurinn sé ætíð rétti vegurinn.

„Hún hefur nú unnið í sér og er vonandi komin á góðan stað. Þetta er mál sem samfélagið getur lært af, á því liggur ekki vafi. En ég biðst auðmjúkur afsökunar hafi ég sært einhvern."


Tengdar fréttir

„Það var fólk á listanum sem ég taldi vini mína“

Kastljósið sýndi í kvöld viðtal við Guðnýju Jónu Kristjánsdóttur sem upplifði það fyrir þrettán árum að stór hópur fólks á Húsavík snerist gegn henni þegar hún kærði skólabróður sinn fyrir nauðgun.

Nauðgunin sem klauf bæjarfélag

113 einstaklingar skrifuðu undir stuðningsyfirlýsingu til varnar dæmdum nauðgara á Húsavík árið 2000. Málið var rifjað upp í Kastljósi í gærkvöldi. Fyrrverandi bæjarstjóri vildi lítið tjá sig vegna málsins en honum þykir þó sæta furðu að það sé dregið upp svo löngu síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×