Enski boltinn

Pressunni létt af Van Gaal | Sjáðu mörkin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, gat andað léttar eftir að hans menn unnu 3-1 sigur á B-deildarliði Derby í 32-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í kvöld.

Van Gaal viðurkenndi að tap hefði mögulega getað kostað hann starfið en United spilaði betur í kvöld en oft áður síðustu vikur og mánuði.

Wayne Rooney kom United yfir snemma leiks með góðu skoti en George Thorne náði reyndar að jafna metin fyrir Derby. Daley Blind og Juan Mata innsigluðu svo sigur United í síðari hálfleik.

Derby hefur ekki afrekað að vinna leik í B-deildinni á þessu ári en er engu að síður í fimmta sæti deildarinnar. Sigur United var þó nokkuð öruggur í kvöld og gæti gefið Van Gaal og United-liðinu hans aukinn kraft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×