Handbolti

Pressa á Stjörnunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sólveig Lára og hinir fyrirliðarnir í Olís-deild kvenna.
Sólveig Lára og hinir fyrirliðarnir í Olís-deild kvenna. vísir/anton
Ef spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna í Olís-deild kvenna rætist lyftir Sólveig Lára Kjærnested, fyrirliði Stjörnunnar, Íslandsbikarnum í lok tímabilsins.

„Það er stefnan að enda þarna. Liðið á eftir að setjast niður og ræða þetta en við stefnum allar á þetta,“ sagði Sólveig. En er þetta ekki eðlilegt markmið hjá liði sem hefur farið í úrslit undanfarin fjögur ár?

„Jú, við erum líka búnar að styrkja okkur og ég held að þetta sé nokkuð eðlilegt. Það hefði s.s. verið hægt að spá öðrum liðum toppsætinu en við bjuggumst alveg við að vera þarna eins og hvert annað lið. Vonandi stöndum við undir þessu,“ sagði Sólveig.

Hún segir að Stjarnan sé með sterkari hóp en í fyrra en meðal leikmanna sem eru komnir í Garðabæinn má nefna Þorgerði Önnu Atladóttur, Elenu Elísabetu Birgisdóttur og Hafdísi Lilju Torfadóttur.

„Við erum með þéttari hóp en í fyrra, komnar með fleiri góða leikmenn og erum eiginlega með tvo sterka leikmenn í hverri stöðu. Við getum vonandi dreift álaginu betur,“ sagði Sólveig.

Stjörnunnar bíður hins vegar það erfiða verkefni að fylla skarð Florentinu Stanciu, markvarðarins frábæra, sem hefur lagt skóna á hilluna. Sólveig hefur trú á markvörðum Stjörnunnar í vetur en segir jafnframt að skarð Florentinu verði vandfyllt.

„Heiða [Ingólfsdóttir] er flottur markvörður og svo fengum við Hafdísi úr Fram sem er mjög efnileg. Ég held að þær geti myndað mjög sterkt teymi. Það fyllir engin í skarð Floru en þær munu standa sig vel,“ sagði Sólveig sem er sátt með nýja fyrirkomulagið á Olís-deildinni sem samanstendur nú af átta liðum en ekki 14 eins og í fyrra.

„Ég held að þetta sé mjög jákvætt. Deildin er rosalega sterk og þetta verður mikil barátta. Liðin þurfa að vera tilbúin strax um helgina, það þýðir ekkert að spila sig í gang. Ég held að þetta verði ótrúlega skemmtilegt,“ sagði Sólveig sem verður í eldlínunni þegar Stjarnan tekur á móti Haukum klukkan 13:30 í dag.


Tengdar fréttir

Lítil trú á Íslandsmeisturunum

Þjálfarar, fyrirliðar og forráðamenn liðanna í Olís-deild kvenna virðast ekki hafa mikla trú á Íslandsmeisturum Gróttu og spáðu liðinu í 5. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×