Erlent

Powell sagði Trump vera þjóðarskömm

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Colin Powell.
Donald Trump og Colin Powell. Vísir/EPA
Colin Powell, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna í ríkisstjórn George WBush, sagði Donald Trump vera þjóðarskömm og aðhlátursefni á heimsvísu. Þetta kemur fram í tölvupóstum frá Powell sem tölvuþrjótar komust yfir og birtu.

Hann sagði „birther“ hreyfinguna sem Trump leiddi vera rasíska. Meðlimir þeirrar hreyfingar trúa því ekki að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sé fæddur í Bandaríkjunum.

Póstarnir voru birtir af samtökunum DCleaks, sem hafa verið tengd áberandi tölvulekum á undanförnum mánuðumDCleaks eru talin tengjast leyniþjónustum Rússlands sem sakaðar eru um að hafa meðal annars brotið sér leið inn í tölvupóstakerfi Demókrataflokksins.

Í samtali við NBC staðfestir Powell að tölvupóstarnir séu raunverulegir og segir hakkarana búa yfir mun fleiri tölvupóstum en hafi verið birtir.

Trump höfði til versta eðlis Repúblikanaflokksins

Powell var, eins og áður hefur komið fram, utanríkisráðherra George WBush. Hann var einnig fjögurra stjörnu hershöfðingi og er repúblikani. Hann hefur neitað að veita Donald Trump stuðning sinn og kemur sér reglulega undan spurningum um forsetaframbjóðandann.

Í tölvupóstum sínum sagði Powell að það að fara í fjölmiðla og kalla Trump „fífl“ myndi eingöngu uppörva hann. Hann stóð einnig í samskiptum við fréttamann CNN og sagði fjölmiðla vera spila eftir leikreglum Trump og ómeðvitað væru þeir að hjálpa honum.

Ennfremur sagði Powell að yfirlýsing Trump um að hann myndi hljóta hylli þeldökkra kjósenda í Bandaríkjunum væri byggð á draumórum.

Hann sagði Trump höfða til versta eðlis Repúblikanaflokksins og fátæks hvíts fólks.

Einnig ósáttur við Clinton

Colin Powell virðist einnig ekki vera sáttur við Hillary Clinton, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins. Hann var reiður yfir því að hún hafi reynt að bendla hann við málið varðandi póstþjóna hennar og að hún hefði getað komið í veg fyrir það hneyksli fyrir tveimur árum. Það eina sem hún hefði þurft að gera væri að segja strax sannleikann og biðjast afsökunar.

Í öðrum tölvupósti sagði hann að Clinton ætti það til að klúðra einföldum málum með drambi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×