Körfubolti

Porzingis langt á undan Dirk | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lettinn Kristaps Porzingis og Dirk Nowitzki árið 1999.
Lettinn Kristaps Porzingis og Dirk Nowitzki árið 1999. Vísir/Getty
Lettinn Kristaps Porzingis er einn mest spennandi nýliðinn í NBA-deildinni í dag enda leikmaður sem gerir sig líklegan til að verða engum öðru líkur.

Kristaps Porzingis er 20 ára og 221 sentímetra kraftframherji sem spilar eins og lítill framherji og getur skotið nánast hvaðan sem er.

Porzingis átti frábæran leik með New York Knicks í nótt og stuðningsmenn Knicks-liðsins, þeir sömu og púuðu þegar nafnið hans var lesið upp í nýliðavalinu, sungu nú nafnið hans „Por-zing-is, Por-zing-is.”

Porzingis endaði með 29 stig og 11 fráköst og New York Knicks vann 102-94 sigur á Charlotte Hornets í sjálfum Madison Square Garden.

Kristaps Porzingis hefur oft verið líkt við Dirk Nowitzki enda mjög hávaxinn skotmaður eins og Þjóðverjinn. Dirk er þó átta sentímetrum minni en Porzingis.

Þeir voru á sama aldrei þegar þeir komu inn í NBA-deildina og því er gaman að bera þá aðeins saman.  

Þetta var að sjálfsögðu besti stigaleikur Porzingis á NBA-ferlinum en hann var þarna að spila sinn tólfta leik. Porzingis hafði mest áður skorað 16 stig en það var í hans fyrsta leik.

Dirk Nowitzki spilaði sinn fyrsta NBA-leik 5. febrúar 1999 og hann náði ekki 29 stiga leik fyrr en í leik númer 36. Porzingis var þannig 24 leikjum á undan honum í að skora að 29 stig í einum leik.

Porzingis er með 12,8 stig og 8,6 fráköst að meðaltali í fyrstu tólf leikjum sínum í NBA-deildinni. Nowitzki var með 7,3 stig og 3,7 fráköst að meðaltali í fyrstu tólf NBA-leikjum sínum.

Lettinn er reyndar bara að nýta 40,7 prósent skota sinna en 83,8 prósent vítanna hafa aftur á móti farið rétta leið. Tölur Nowitzki í fyrstu tólf leikjum hans voru 34 prósent skotnýting og 79 prósent vítanýting.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtileg myndbönd með Kristaps Porzingis úr leiknum í nótt en það er ein Hakeem Olajuwon hreyfing hjá honum (eftir 11 sekúndur í efra myndbandinu og eftir 14 sekúndur í neðra myndbandinu) sem fær flesta til að trúa því að kappinn geti orðið einn af þeim betri í deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×