Fótbolti

Portúgalir og Norður-Írar komnir á EM | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cristiano Ronaldo og félagar eru komnir á EM.
Cristiano Ronaldo og félagar eru komnir á EM. Vísir/EPA
Portúgal tryggði sér í kvöld sæti í lokakeppni EM 2016 með 1-0 sigri á Danmörku í I-riðli undankeppninnar.

Joao Moutinho skoraði eina mark leiksins á 66. mínútu en Portúgal hefur unnið sex af sjö leikjum sínum í riðilinum og er með 18 stig á toppi hans.

Danir eru hins vegar með 12 stig í 2. sæti riðilsins, einu stigi á undan Albaníu sem tapaði 0-2 fyrir Serbíu í nágrannaslag í kvöld. Bæði mörkin komu í uppbótartíma.

Danir hafa lokið leik í riðlinum en Albanir geta stolið 2. sætinu af þeim vinni þeir Armeníu í lokaleik sínum á sunnudaginn.

Steven Davis skoraði tvö mörk þegar Norður-Írar unnu 3-1 sigur á Grikklandi í F-riðli. Með sigrinum tryggði Norður-Írland sér sæti í lokakeppni EM í fyrsta sinn.

Í sama riðli gerðu Rúmenar og Finnar 1-1 jafntefli og Ungverjar komu til baka og unnu 2-1 sigur á Færeyjum á heimavelli.

Rúmenía er í 2. sæti riðilsins með 17 stig, einu stigi á undan Ungverjalandi sem getur náð 2. sætinu af Rúmenum í lokaumferðinni á sunnudaginn.

Öll mörkin úr leikjunum í F- og I-riðli má sjá hér að neðan.

F-riðill:

Norður-Írland 3-1 Grikkland

1-0 Steven Davis (35.), 2-0 Josh Magennis (49.), 3-0 Davis (58.), 3-1 Christos Aravidis (87.).

Ungverjaland 2-1 Færeyjar

0-1 Róaldur Jakobsen (11.), 1-1 Dániel Böde (63.), 2-1 Böde (71.).

Rúmenía 1-1 Finnland

0-1 Joel Pohjanpalo (67.), 1-1 Ovidiu Hoban (90+1).

I-riðill:

Portúgal 1-0 Danmörk

1-0 Joao Moutinho (66.)

Albanía 0-2 Serbía

0-1 Aleksandar Kolarov (90+1), 0-2 Adem Ljajić (90+4).

Norður-Írland 3-1 Grikkland Ungverjaland 2-1 Færeyjar Rúmenía 1-1 Finnland Portúgal 1-0 Danmörk Albanía 0-2 Serbía



Fleiri fréttir

Sjá meira


×