Fótbolti

Porto og Sevilla síðustu liðin inn í sextán liða úrslitin | Úrslitin í Meistaradeildinni í kvöld | Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gonzalo Higuaín fagnar marki sínu í kvöld.
Gonzalo Higuaín fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Porto frá Portúgal og Sevilla frá Spáni voru tvö síðustu liðin sem tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Borussia Dortmund og Juventus tryggðu sér toppsætið í sínum riðlum.

Juventus tryggði sér toppsætið í H-riðli eftir 2-0 heimasigur á Dinamo Zagreb. Mörkin komu bæði í seinni hálfleik. Gonzalo Higuaín skoraði fyrra markið en Daniele Rugani skoraði það síðara eftir sendingu frá Miralem Pjanic.

Sevilla nægði jafntefli á útivelli á móti Lyon til að komast í sextán liða úrslitin og markalaust jafntefli urðu úrslitin í Frakklandi.





Porto tryggði sér annað sætið í G-riðli eftir 5-0 stórsigur á Englandsmeisturum Leicester City en Leicester var búið að tryggja sér sigur í riðlinum fyrir leikinn.

FC Kaupmannahöfn vann 2-0 sigur á Club Brugge á útivelli og átti möguleika á sæti í sextán liða úrslitunum en aðeins ef Porto tapaði stigum. Það kom fljótlega í ljós að Leicester var ekki að fara gera neitt af viti í Portúgal í kvöld.





Varamaðurinn Marco Reus skoraði jöfnunarmark Borussia Dortmund tveimur mínútum fyrir leikslok og tryggði þýska liðinu ekki aðeins 2-2 jafntefli á móti Real Madrid á Santiago Bernabéu heldur einnig toppsæti riðilsins.

Legia Warsjá fer í Evrópudeildina eftir 1-0 heimasigur á portúgalska liðinu Sporting frá Lissabon sem situr eftir með sárt ennið. Guilherme var hetja pólska liðsins.





Bayer Leverkusen vann 3-0 stórsigur á toppliði Mónakó en það skipti ekki máli því franska liðið var búið að vinna riðilinn fyrir lokaumferðina.

Tottenham þurfti að vinna CSKA Moskvu til þess að tryggja sér sæti í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar og það tókst eftir smá bras í byrjun þar sem Rússarnir komust í 1-0. Tottenham svaraði með þremur mörkum og vann sinn fyrsta Evrópusigur á Wembley á tímabilinu.





Úrslit og markaskorarar í Meistaradeildinni í kvöld:

E-riðill

Bayer Leverkusen - Mónakó 3-0

1-0 Vladlen Yurchenko (30.), 2-0 Julian Brandt (48.), 3-0 Sjálfsmark Morgan De Sanctis (82.)

Tottenham - CSKA Moskva 3-1

0-1 Alan Dzagoev (33.), 1-1 Dele Alli (38.), 2-1 Harry Kane (45.), 3-1 Sjálfsmark Igor Akinfeev (77.).

F-riðill

Legia Warsjá - Sporting 1-0

1-0 Guilherme (30.)

Real Madrid - Borussia Dortmund 2-2

1-0 Karim Benzema (28.), 2-0 Karim Benzema (53.), 2-1 Pierre-Emerik Aubameyang (61.), 2-2 Marco Reus (88.).

G-riðill

Club Brugge - FC Kaupmannahöfn 0-2

0-1 Sjálfsmark Brandon Mechele (8.), 0-2 Mathias Jørgensen (15.)

Porto - Leicester 5-0

1-0 André Silva (6.), 2-0 Jesús Corona (26.), 3-0 Yacine Brahimi (44.), 4-0 André Silva (64.), 5-0 Jota (77.)

H-riðill

Juventus - Dinamo Zagreb 2-0

1-0 Gonzalo Higuaín (52.), 2-0 Daniele Rugani (73.)

Lyon - Sevilla 0-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×