Lífið

Poppprinsinn loksins löglegur

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Justin Bieber
Justin Bieber Vísir
Poppprinsinn Justin Bieber er svo sannarlega ekkert „Baby“ lengur, en hann fagnaði 21.árs afmæli sínu í gær þann 1. mars, og má því núna neyta áfengis löglega í Bandaríkjunum.

Hann hélt upp á stóra daginn um helgina á einkaeyju í Karabískahafinu og var vinkona hans Hailey Baldwin, dóttir leikarans Stephen Baldwin, í partíinu. Þau hafa sést mikið saman undanfarið, en neita að vera nokkuð meira en góðir vinir.

Fyrr í vikunni birti Bieber mynd af sér á Instagram síðu sinni, þar sem hann var að keyra um á 1965 árgerð af Lincoln Continental, sem hann fékk í afmælisgjöf frá vinum sínum. 

Svona var afmælisgjöfin hans BieberVísir/getty

A photo posted by Justin Bieber (@justinbieber) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×