Poppað en kraftmikið

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 03. febrúar 2012 20:00
Hafnfirska rokksveitin Vicky hefur vakið athygli erlendis.
Hafnfirska rokksveitin Vicky hefur vakið athygli erlendis.
Trausti Júlíusson skrifar:
Vicky. Cast A Light.

Cast a Light er önnur plata hafnfirsku rokkhljómsveitarinnar Vicky, en hún er skipuð þremur stelpum og einum strák. Eygló syngur, Ástrós spilar á bassa, Karlotta á gítar og Orri á trommur.

Vicky er mjög öflugt og skemmtilegt tónleikaband og hefur meðal annars vakið mikla athygli á Iceland Airwaves undanfarin ár. Tónlistin sem þau spila er kraftmikið gítarrokk með poppuðu ívafi. Lagasmíðarnar á Cast a Light eru fínar, ryþmaparið er þétt og gítarleikarinn er að gera mjög góða hluti. Eygló er líka hörku rokksöngkona og verður bara betri.

Það eru tíu lög á plötunni og þau standa öll fyrir sínu, þó að ég haldi einna mest upp á Feel Good, Lullaby, Cast a Light og lokalagið Gold, sem sker sig nokkuð úr: Rólegt og órafmagnað popplag með víóluleik.

Cast a Light kom út í haust, en flaug frekar lágt. Vicky hefur vakið athygli erlendis og m.a. spilað bæði í Bandaríkjunum og Kína, auk þess sem sjálfur David Fricke hjá Rolling Stone mælti sérstaklega með Cast a Light nýlega. Tónlistin sem Vicky spilar er ekki það ferskasta í dag, en Cast a Light er samt sem áður mjög vel unnin og heilsteypt rokkplata.

Sem sagt: Heilsteypt og vel unnin rokkplata.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 25. maí. 2012 12:00

Alltumlykjandi og áhrifarík

Sigur Rós tekur stóra beygju með rólegri og hrífandi plötu. Á heildina litið er Valtari fí...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Poppað en kraftmikið