Körfubolti

Popovich gaf syni Sager fallega gjöf

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gregg Popovich.
Gregg Popovich. vísir/getty
Hinn hrjúfi þjálfari San Antonio Spurs, Gregg Popovich, hefur sýnt mjúku hliðarnar í kringum andlát íþróttafréttamannsins Craig Sager.

Popovich er þekktur fyrir að vera þurr og stuttur í spuna í viðtölum en gaf mikið af sér til Sager á síðustu mánuðum og hvatti hann til dáða í baráttunni við krabbamein.

Þó svo Spurs væri að spila í Texas sama dag og Sager var jarðsettur þá flaug Popovich til Georgíu í jarðarförina. Hann fór svo beint til Texas.





Þeir sem mættu í jarðarförina voru beðnir um að mæta í áberandi klæðnaði í anda Sager sem var ávallt skrautlegur í tauinu.

Popovich á nú ekki mikið af skrautlegum fötum en mætti þó með skemmtilegt bindi.

Er hann snéri aftur til Georgíu til að spila við Atlanta var Popovich með bindið góða á hliðarlínunni.

Hann hitti svo son Sager eftir leikinn og gaf honum bindið. Það kunni sonurinn svo sannarlega að meta. Pop er greinilega mun mýkri að innan en flestir halda.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×