Matur

Pönnusteiktur lax með döðlum – að hætti Rikku

Lax
Lax

Pönnusteiktur lax með döðlum, sólþurrkuðum tómötum og sítrónusmjörsósu að hætti Rikku

4 laxabitar

Olía til steikingar

6 sólþurrkaðir tómatar, saxaðir

8 mjúkar döðlur, saxaðar

1 hvítlaukur, pressaður

1 msk. kapers



SÍTRÓNUSMJÖRSÓSA

60 ml hvítvín

60 ml hvítvínsedik

½ skalottlaukur, sneiddur

Sjávarsalt og nýmalaður hvítur pipar

250 g kalt smjör

1 msk. sítrónusafi



KARTÖFLUMÚS

3 bökunarkartöflur, afhýddar og soðnar

2 msk. smjör

1 msk. mjólk

Sjávarsalt og nýmalaður pipar

Rikka

Byrjið á því að undirbúa kartöflumúsina og sjóðið kartöflurnar.

Steikið hvítlauk upp úr smá olíu og bætið sólþurrkuðum tómötum og döðlum saman við, steikið við meðalhita í 3-4 mínútur.

Bætið kapers saman við, takið af hellu og setjið lok yfir. Þá er komið að því að undirbúa sósuna.

Byrjið á því að hella hvítvíni og ediki á pönnu og sjóða niður um helming, bætið þá skalottlauk, salti og pipar út í og sjóðið niður við meðalhita þar til um 2 msk. af soðinu eru eftir.

Bætið þá köldu smjörinu smám saman við, 1 msk. í einu, þar til að það er uppurið. 

Hellið sítrónusafanum saman við rétt áður en sósan er borin fram. Þerrið laxabitana með eldhúspappír og kryddið með salti og pipar.

Steikið upp úr olíu á meðalheitri pönnu í um 3 mínútur á hvorri hlið (fer eftir þykkt). 

Á meðan laxinn er á pönnunni er gott að klára kartöflumúsina.

Stappið kartöflurnar (mér finnst best að nota hrærivél) og bætið smjöri og mjólk út í.

Kryddið kartöflumúsina eftir smekk. 

Setjið kartöflumús á disk og leggið laxabita ofan á, hellið sósunni yfir og að lokum tómat- og döðlublöndunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×