Innlent

Pólska verður kennd í fyrsta sinn í Háskóla Íslands í haust

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Eyjólfur hefur unnið lengi að því að fá pólsku­kennslu í Háskóla Íslands en verkefnið er unnið í samstarfi við háskólann í Varsjá.
Eyjólfur hefur unnið lengi að því að fá pólsku­kennslu í Háskóla Íslands en verkefnið er unnið í samstarfi við háskólann í Varsjá. Vísir/Vilhelm
Tungumálastöð HÍ heldur í haust sex vikna námskeið í samstarfi við háskólann í Varsjá. Þaðan mun koma kennari til þess að kenna á námskeiðinu. Ef áhugi er fyrir hendi væri í framhaldinu hægt að kenna pólsku í fullu námi.

Það þykir undarlegt að Íslendingum hafi ekki áður staðið til boða að læra pólsku þar sem um 10.000 Pólverjar búa hér á landi. Fyrir hafði pólska aðeins verið kennd í Mími og í Pólskuskólanum sem sérhæfir sig í pólskukennslu fyrir pólsk börn.

Eyjólfur Már Sigurðsson hjá Tungumálastöð HÍ vonast eftir góðri þátttöku á námskeiðinu því þá yrði möguleiki til að kenna pólsku sem fullt nám.

„Þetta hefur aldrei verið kennt hjá okkur áður sem er svolítið skrítið því þetta er svo útbreitt tungumál. Við fórum að þreifa okkur áfram í styrkjum og samstarfi. Ég heimsótti háskólann í Varsjá til þess að kynna mér pólskunámið hjá þeim sem er alveg frábært. Við sóttum um styrk frá EFTA til þess að fjármagna ferðir kennarans til og frá Íslandi sem við fengum,“ segir Eyjólfur.

Hver sem er getur skráð sig í gegnum Endurmenntun Háskóla Íslands og tekið námskeiðið.

„Þetta er hugsað fyrir nemendur sem vilja taka eitthvað meira en þetta er hentugt þar sem þetta er kennt á skömmum tíma. Þetta er líka upplagt fyrir alla þá sem hafa áhuga á að læra pólsku sem annað tungumál. Námskeiðið er metið til fimm eininga. Við erum ekki enn þá komin með tölu yfir hversu margir mæta á námskeiðið en skráning fyrir nemendur háskólans verður til 10. september. Skráning í gegnum Endurmenntun verður eitthvað lengur en það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×