MÁNUDAGUR 20. MAÍ NÝJAST 23:30

Di Canio úthúðar Phil Bardsley

SPORT

Pólitísk kreppa

Fréttablaðið Fastir pennar 02. apríl 2012 06:00
Þórður snær júlíusson thordur@frettabladid.is
Þórður snær júlíusson thordur@frettabladid.is
Sitjandi ríkisstjórn er almennt illa liðin. Einungis 31% þjóðarinnar styður hana og ólíklegt virðist að það fylgi muni aukast verulega. Fyrir því eru fjórar ástæður. Í fyrsta lagi hefur hún þurft að taka erfiðari og óvinsælli ákvarðanir en líkast til nokkur önnur ríkisstjórn til að rétta af ríkisreksturinn. Margar þeirra hafa verið algjörlega nauðsynlegar og því marki brenndar að vera hugsaðar með langtímahagsmuni í huga frekar en skammtímavinsældir.

Í öðru lagi lofaði hún miklu meiru en hún gat nokkurn tímann efnt. Það átti að keyra í gegn umfangsmiklar samfélagsbreytingar á nánast öllum sviðum samhliða því að endurreisa efnahagskerfi þjóðar. Verkefnin sem þó hefur verið ráðist í hafa hins vegar mörg hver verið útþynnt. Í þriðja lagi hefur hún hreinlega klúðrað mörgum málum. Ber þar að nefna framgöngu hennar í Icesave-deilunni, meðhöndlun á viljugri erlendri fjárfestingu, mislukkaða endurreisn sparisjóðakerfisins og ólögmæta kosningu til stjórnlagaráðs. Í fjórða lagi hafa lykilmenn innan stjórnarflokkanna opinberað sig sem hégómatröll sem taka eigin hagsmuni og valdafýsn fram yfir heildina.

Vegna þessa verður að teljast nánast útilokað að Samfylking og Vinstrihreyfingin-grænt framboð muni geta myndað ríkisstjórn eftir komandi alþingiskosningar. Og miðað við gífuryrðin sem fallið hafa á kjörtímabilinu er nánast útilokað að stjórnarandstaðan sé tilbúin að vinna með öðrum stjórnarflokknum. Það er raunar afar erfitt að sjá hvers konar stjórn verður hægt að mynda yfir höfuð.

Sjálfstæðisflokkurinn, sá eini sem gæti myndað tveggja flokka ríkisstjórn, mælist með um þriðjungsfylgi. Það er líkast til kjarnafylgi hans. Draumur hans um að mynda stjórn með Framsóknarflokknum virðist þó fjarlægur. Samanlagt fylgi þeirra er ekki nægjanlegt. Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, hélt því nýverið réttilega fram að þetta litla fylgi væri vísbending um að uppgjör Sjálfstæðisflokksins við fortíðina hefði ekki tekist sem skyldi. Vegna þessa höfðar flokkurinn ekki til lausafylgis. Forystumenn hans virðast þó gera alls ekki gera sér grein fyrir því heldur umlykja sig fremur já-mönnum sem segja að það sé ómaklegt að spyrna þeim saman við óuppgerð mál.

Kannanir hafa sýnt það í lengri tíma að 25-30% kjósenda munu að öllum líkindum kjósa eitthvað annað en fjórflokkinn. Valkostirnir hafa líkast til aldrei verið fleiri en enginn þeirra virðist líklegur til að hreinsa upp nægilega mikið af óánægjufylginu til að geta orðið valkostur í ríkisstjórn. Í lausafylginu felst gullið tækifæri fyrir skynsamt og jarðbundið stjórnmálaafl sem talar hvorki beint til neinna sérhagsmunahópa né lofar óframkvæmanlegri eða eyðileggjandi steypu til að tryggja sér lýðhylli. Slíkt afl virðist þó, enn sem komið er, ekki vera að finna á meðal jaðarflokkanna sem tilkynnt hafa sig til leiks.

Við erum að sigla inn í kosningar við aðstæður þar sem ógjörningur virðist vera að mynda starfhæfa ríkisstjórn úr þeim valkostum sem í boði eru. Á sama tíma er traust á Alþingi í sögulegu lágmarki. Það mælist nú 10% en var 40% í febrúar 2008. Á meðal stofnana mælist einungis bankakerfið með minna traust. Það er því pólitísk kreppa framundan á sama tíma og við þurfum nauðsynlega á festu að halda. Vonandi smitar hún ekki út frá sér til annarra anga samfélagsins. Við því megum við illa.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fastir pennar 18. maí 2013 12:00

Vandinn við hvíta lygi

Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 06:00

300 ára gamlar kennsluaðferðir

Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 15:00

Selfoss og Maribo

Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 11:01

Öflugri hópur, betri fréttir

Fréttastofur 365 miðla sameinast í eina. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Júróvísa

Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Tvær frjálsar hendur, slef og tunga

Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí... Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 07:00

Þvingur, lím og stærðfræðijöfnur

Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að. Meira
Fastir pennar 15. maí 2013 09:00

Stokka upp eða láta það springa?

Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums... Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:30

Blindur, brúnn og hrukkóttur

Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna. Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:15

Ofbeldi gegn ófæddum börnum

Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Valfrelsi með humrinum

Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Lækningar fremur en refsingar

Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga. Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

Sumarbústaðir þjóðarinnar

Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek... Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

45.000 fleiri í hvalaskoðun

Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik... Meira
Fastir pennar 09. maí 2013 07:00

Sveitarfélögum fækkað um 62

Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ... Meira
Fastir pennar 08. maí 2013 07:00

Tækifæri í tollalækkun

Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum... Meira
Fastir pennar 07. maí 2013 07:00

Neðrideildarleikur í Noregi

Dómarar í knattspyrnuleikjum meistaradeildar karla fá 156% hærri laun en þeir sem dæma leiki í efstu deild kvenna. Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Kaupum álfinn

Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ.... Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Lærum að leika okkur

Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un... Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Umtalsverð áhætta í fjármálakerfinu

Þessi jákvæða þróun gefur þó ekki tilefni til að slakað sé á árvekni gagnvart þeirri umtalsverðu áhættu í fjármálakerfinu sem enn er til staðar.“ Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Huga verður að grunninum

Eftirtektarverður árangur frumkvöðlanna sem að sprotafyrirtækinu CLARA standa sýnir í hnotskurn um hvers konar verðmæti er að tefla í þessum í geira nýsköpunar og tækni. Meira
Fastir pennar 03. maí 2013 07:00

Fáum 2007 aftur

Einn af mínum uppáhaldshlaupabolum er úr Reykjavíkurmaraþoni Glitnis árið 2007. Bolurinn er úr svona rauðu pólýesterefni sem hrindir frá sér vökva. Ef ég set hann í þvottavél þá kemur hann gott sem þu... Meira
Fastir pennar 03. maí 2013 07:00

Gjald til bjargar Þingvöllum

Óvenjumikil aðsókn kafara hefur verið að Silfru á Þingvöllum það sem af er ári, eins og Fréttablaðið sagði frá fyrr í vikunni. Tvö þúsund kafarar hafa stungið sér í gjána í marz og apríl, miklu fleiri... Meira
Fastir pennar 02. maí 2013 20:00

Píkan þarf ekki að láta "skvísa“ sig upp

Um daginn var ég að versla í matvöruverslun og mig vantaði dömubindi, mín tegund var ekki til svo ég fór að velta fyrir mér úrvalinu og tók eftir að í boði eru dömubindi með lykt. Ég velti því fyrir m... Meira
Fastir pennar 02. maí 2013 09:00

Jákvæð mismunun í Kauphöll Íslands

Fyrir fimm árum var aðeins einn af hverjum tíu stjórnarmönnum í fyrirtækjum skráðum í Kauphöll Íslands kona. Ein af hverjum tíu. Þrátt fyrir allt tal um jafnrétti, nýja tíð og framsýna hugsun komumst ... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Pólitísk kreppa
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000