Innlent

Polar Seafood: Aðrir skipverjar ekki grunaðir um aðild að hvarfi Birnu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá aðgerðum lögreglu við í tengslum við komu Polar Nanoq í gærkvöldi.
Frá aðgerðum lögreglu við í tengslum við komu Polar Nanoq í gærkvöldi. vísir/anton brink
Polar Seafood, útgerðarfyrirtæki Polar Nanoq, hefur leitað til Rauða kross Íslands til að veita skipverjum á grænlenska togaranum áfallahjálp í kjölfar þess að þrír úr áhöfninni voru handteknir í gær í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur. Þetta kemur í fram í yfirlýsingu sem fyrirtækið sendi fjölmiðlum í dag.

Þar kemur fram að í nótt hafi lögregla leitað í skipinu og rætt við aðra skipverja. Enginn þeirra er grunaður um aðild að hvarfi Birnu.

Hins vegar rannsakar lögregla einnig fund á umtalsverðu magni af hassi um borð í togaranum en einn skipverji til viðbótar hefur verið handtekinn vegna þess máls. Mun Polar Nanoq halda kyrru fyrir í Hafnarfjarðarhöfn á meðan lögreglan lýkur rannsókn sinni um borð.

„Polar Seafood mun áfram aðstoða yfirvöld á Íslandi vegna málanna og vonar að þau upplýsist sem fyrst. Þá leggur fyrirtækið sig fram um að koma upplýsingum til ættingja skipverja, auk þess sem unnið er að því að útvega áhöfninni áfallahjálp og leitað hefur verið aðstoðar hjá Rauða krossi Íslands,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins

Tveir skipverjar hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald grunaðir um aðild að hvarfi Birnu. Ekki liggur fyrir hvort farið verði fram á varðhald yfir þeim þriðja.


Tengdar fréttir

Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar

Tveir menn sem grunaðir eru um aðild að hvarfi Birnu Brjánsdóttur komu saman á rauðri Kia Rio bifreið að Hafnarfjarðarhöfn klukkan rúmlega sex að morgni laugardags. Annar þeirra fór um borð í togarann en hinn ók í burtu.

Rannsóknargögn úr rauða Kia Rio-bílnum benda til misindisverks

Gögn sem fundust við rannsókn á rauðri Kia Rio-bifreið sem lögregla haldlagði í Hlíðasmára í Kópavogi í hádeginu á þriðjudag í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur benda til þess að misindisverk hafi verið framið í bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×