Innlent

Polar Nanoq heldur af landi brott

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Polar Nanoq í Hafnarfjarðarhöfn.
Polar Nanoq í Hafnarfjarðarhöfn. Vísir/Vilhelm
Grænlenski togarinn Polar Nanoq mun halda af landi brott síðar í kvöld en lögregla hefur lokið störfum um borð eftir aðgerðir í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur.

Stórum hluta áhafnarinnar hefur verið skipt út, en hluti skipverja kaus að snúa aftur heim í stað þess að halda aftur á sjó. Tveir skipverjar eru í haldi lögreglu grunaðir um saknæmt athæfi í tengslum við lát Birnu. Þá er annar þeirra grunaður um smygl á umtalsverðu magni af hassi.

Í tilkynningu frá Polar Seafood, útgerð Polar Nanoq, segir að áhöfnin sé þakklát fyrir þann stuðning sem hún fékk í erfiðum aðstæðum á Íslandi.

Í tilkynningunni segir einnig að Polar Seafood sé yfirvöldum til reiðu um hvers konar aðstoð eða upplýsingar vegna rannsóknanna, en beinir jafnframt öllum fyrirspurnum vegna þeirra til lögreglu.

Þá segir einnig að atburðirnir í tengslum við hvarf Birnu hafi lagst þungt á áhöfn Polar Nanoq og aðra hjá Polar Seafood. Útgerðin geti þó ekki borið ábyrgð á framferði einstaklinga sem ráða sig til starfa hjá fyrirtækinu.

„Allir hjá Polar Seafood eru harmi slegnir yfir atburðum og fregnum síðustu daga og votta fjölskyldu og vinum Birnu Brjánsdóttur innilega samúð sína.“

Yfirlýsing Polar Seafood í heild sinni

„Lögreglan á Íslandi hefur lokið störfum um borð í togaranum Polar Nanoq og gera áætlanir ráð fyrir að skipið láti bráðlega úr höfn.

Stórum hluta áhafnarinnar hefur verið skipt út, en hluti skipverja kaus að snúa aftur heim í stað þess að halda aftur á sjó. Áhöfnin er þakklát fyrir stuðning sem hún fékk í erfiðum aðstæðum á Íslandi.

Tveir skipverjar Polar Nanoq eru í haldi lögreglu á Íslandi grunaðir um saknæmt athæfi í tengslum við lát Birnu Brjánsdóttur. Þá er annar þeirra grunaður um smygl á umtalsverðu magni af hassi.

Rannsókn lögreglu á láti Birnu og fíkniefnafundinum um borð í skipinu heldur áfram og gengur vonandi hratt og vel fyrir sig. Polar Seafood er yfirvöldum til reiðu um hvers konar aðstoð eða upplýsingar vegna rannsóknanna, en beinir öllum fyrirspurnum vegna þeirra til lögreglu.

Atburðir síðustu daga hafa lagst þungt á áhöfn Polar Nanoq og aðra hjá Polar Seafood. Um leið getur útgerðin ekki borið ábyrgð á framferði og ákvörðunum einstaklinga sem ráða sig til starfa hjá því. Allir hjá Polar Seafood eru harmi slegnir yfir atburðum og fregnum síðustu daga og votta fjölskyldu og vinum Birnu Brjánsdóttur innilega samúð sína.

Við hjá Polar Seafood erum þakklát fyrir alla aðstoð á Íslandi á þessum erfiðu stundum. Sérstakar þakkir viljum við senda stjórnvöldum, utanríkisráðuneyti og lögreglu, danska sendiráðinu og sjálfboðaliðum björgunarsveita landsins. 

Jørgen Fossheim,

útgerðarstjóri hjá Polar Seafood“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×