Innlent

Pokasjóður styrkir Félag Nepala um 5 milljónir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ashu Gurung formaður Félags Nepala á Íslandi, Dammar Gurung gjaldkeri, Bjarni Finnsson, formaður stjórnar Pokasjóðs, Rajendra Bahadur Gurung varaformaður Félags Nepala á Íslandi og Kamala Gurung ritari.
Ashu Gurung formaður Félags Nepala á Íslandi, Dammar Gurung gjaldkeri, Bjarni Finnsson, formaður stjórnar Pokasjóðs, Rajendra Bahadur Gurung varaformaður Félags Nepala á Íslandi og Kamala Gurung ritari. Mynd/Rauði Kross Íslands
Stjórn Pokasjóðs afhenti neyðarsöfnun Félags Nepala á Íslandi fimm milljónir króna við hátíðlega athöfn í húsi Rauða krossins við Efstaleiti 9 í dag.

Eins og flestum er kunnugt reið risaskjálfti yfir Nepal þann 25. apríl síðastliðinn og annar slíkur þann 12. maí. Ljóst er að hátt í 9000 manns eru látnir og tæplega 20 þúsund eru slasaðir. Enn ríkir neyðarástand í landinu og ekki búist við að breyting verði á í bráð. Nepalskt samfélag er einkar berskjaldað og þörfin fyrir hjálpargögnum og neyðaraðstoð er aðkallandi.

Stjórn Pokasjóðs úthlutar árlega styrktarfé til almannaheilla innanlands en í ljósi hörmunganna í Nepal á síðustu vikum var ákveðið að veita fé til söfnunar Félags Nepala á Íslandi sem hóf neyðarsöfnun strax í kjölfar fyrsta skjálftans. Að sögn Bjarna Finnssonar, formanns stjórnar Pokasjóðs, var einhugur innan sjóðsins með að styrkja málefnið.

„Við í sjórninni vorum sammála um að styrkja söfnun Félags Nepala og vonum að þetta fé komi í góðar þarfir. Það hefur verið erfitt að horfa upp á ástandið í Nepal og við vildum leggja okkar af mörkum.“

Rajendra Bahadur Gurung er varaformaður Félags Nepala á Íslandi. Hann segist einstaklega þakklátur með framlag Pokasjóðs.

„Félagsmenn hafa unnið ötullega að söfnuninni, bæði fyrir bágstadda í Nepal en einnig til að sinna okkar eigin sálgæslu – það skiptir máli að láta hendur standa fram úr ermum. Þessi stuðningur sem við fáum nú frá Pokasjóði er ómetanlegur og við í félaginu erum einstaklega þakklát.“

Félag Nepala á Íslandi starfar með Rauða krossinum á Íslandi og veitir söfnunarfé sínu í gegnum mannúðar- og hjálparstarf Alþjóða Rauða krossins í Nepal.

Félag Nepala á Íslandi tekur á móti frjálsum framlögum:

Reikningur söfnunarinnar er: 0133-15-380330

Kennitala: 511012-0820

Þá minnir Rauði krossinn á söfnunarsíma sem enn eru opnir:

904 1500

904 2500

904 5500




Fleiri fréttir

Sjá meira


×