Enski boltinn

Pogba mætti á blaðamannafund hjá Redskins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pogba og Henry á Wembley í gær.
Pogba og Henry á Wembley í gær. vísir/afp
Paul Pogba og Thierry Henry skelltu sér á NFL-leik hjá Cincinnati Bengals og Washington Redskins í London í gær.

Ekki nóg með að þeir hafi mætt á leikinn heldur var Pogba kallaður upp af Josh Norman, bakverði Bleiknefja, á blaðamannafundinum eftir leik.

Norman var þá með Man. Utd-trefil sem Pogba hafði gefið honum. Sjá má það skemmtilega atvik hér.

Norman er mikill áhugamaður um knattspyrnu og NFL-áhugi Pogba hefur líklega aukist eftir að hafa séð sinn fyrsta leik á vellinum.

Leikurinn var líka taumlaus skemmtun og endaði með jafntefli. Bandaríkjamenn hata fátt meira en jafntefli en leikurinn var góður.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×