Fótbolti

Pogba framlengir til 2019

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Juventus hefur staðfest að miðjumaðurinn Paul Pogba hafi framlengt samning sinn við félagið til 2019. Hann hafði áður verið orðaður við bæði PSG og Real Madrid.

Þessi 21 árs gamli Frakki þykir einn efnilegasti miðjumaður Evrópu í dag en hann á þegar að baki 20 leiki með franska landsliðinu. Hann hóf ferilinn hjá Manchester United en fór til Juventus árið 2012.

Umboðsmaður kappans, Mino Raiola, hafði fyrr í vikunni sagt að stutt væri í að nýr samningur yrði undirritaður og hefur það nú verið staðfest. Talið er að riftunarverð samningsins sé 70 milljónir evra - um 10,6 milljarðar króna.

Gamli samningurinn átti að renna út árið 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×