Fótbolti

Podolski orðaður við Schalke

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lukas Podolski
Lukas Podolski Mynd / Getty Images
Lukas Podolski, leikmaður Arsenal, er sterklega orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið Schalke um þessar mundir.

Aðspurður hvort hann hefði verið í viðræðum við Podolski svaraði Jens Keller, knattspyrnustjóri Schalke, því neitandi.

Podolski gekk í raðir Arsenal árið 2012 frá Köln en nú gæti hann verið á leiðinni á ný til Þýskalands.

„Við höfum verið í viðræðum við fullt af leikmönnum en ég vill ekki nefna nein nöfn,“ sagði Keller á blaðamannafundi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×