Enski boltinn

Pochettino ætlar að framlengja við Spurs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino. vísir/getty
Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino, stjóri Spurs, hefur gefið það út að hann ætli að framlengja samning sinn við Tottenham.

Hann er með samning við félagið til 2019 en ætlar að framlengja til ársins 2021. Hann kom til félagsins í maí árið 2014.

„Þetta var mjög auðveld ákvörðun enda er ég elskaður hér og félagið á alla möguleika á því að gera það áfram gott. Af hverju á maður þá að breyta til?“ spyr Pochettini.

„Það er búið að búa til gott andrúmsloft hjá félaginu og ég tel að við getum gert stóra hluti í framtíðinni. Ég trúi á þetta verkefni og félagið. Hér vil ég vera áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×