Tónlist

Plötusnúður á uppleið spilar á Sónar-hátíðinni

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Hemsworth framleiðir takta fyrir hina nýju bylgju rappara.
Hemsworth framleiðir takta fyrir hina nýju bylgju rappara. nordicphotos/getty
Kanadíski plötusnúðurinn og taktsmiðurinn Ryan Hemsworth mun koma fram á tónleikahátíðinni Sónar Festival í Hörpu 14. febrúar.

Hemsworth er rísandi stjarna í heimi raftónlistarinnar en hann hefur framleitt lög fyrir fjölda rappara svo sem Deniro Farrar, Sole og The Underachievers ásamt því að endurhljóðblanda lög frá ýmsum frægum tónlistarmönnum.

Þá framleiðir hann sína eigin takta og er talinn vera í fremstu röð framsækinnar klúbba- og raftónlistar í heiminum. Hemsworth framleiðir oft takta fyrir rappara sem eru hluti af hinni nýju bylgju óhefðbundinna og öðruvísi rappara.

Ekki er reyndar búið að tilkynna um komu Hemsworth af hálfu Sónar Festival en fram kemur á plakatinu fyrir komandi Evróputúr Hemsworth að hann muni stoppa í Reykjavík og spila á hátíðinni 14. febrúar.

Aðstandendur Sónar staðfesta þetta í samtali við Fréttablaðið en Hemsworth verður tilkynntur formlega í dag. Þá verður einnig tilkynnt nafn í tónlistarheiminum sem er að sögn aðstandenda Sónar gríðarstórt. Mun það eflaust verða raftónlistaráhugamönnum á landinu til mikillar gleði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×