Fótbolti

Platt mættur í indversku Ofurdeildina

Platt ásamt Jack Rodwell.
Platt ásamt Jack Rodwell. vísir/getty
Fyrrum landsliðsmaður Englands, David Platt, er orðinn þjálfari í indverska boltanum.

Það er búið að ráða hann sem stjóra hjá FC Pune City. Þetta verður fyrsta þjálfarastarf Platt síðan hann fór frá Man. City árið 2013. Hann var áður með lið Nott. Forest og enska U-21 árs liðið.

Pune City varð í sjötta sæti í indversku Ofurdeildinni á síðasta tímabili. Á meðal leikmanna liðsins er franski framherjinn David Trezeguet.

„Ég vissi lítið um deildina þegar þetta tækifæri kom upp á borðið. Því meira sem ég vissi því spenntari varð ég. Við erum með metnaðarfulla áætlun sem verður gaman að fylgja eftir," sagði Platt.

Tímabilið í Indlandi hefst í október. Annar enskur þjálfari er í deildinni en það er Peter Reid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×