Fótbolti

Platini harðorður: Eina markmiðið var að koma í veg fyrir að ég yrði forseti FIFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sepp Blatter og Michel Platini.
Sepp Blatter og Michel Platini. Vísir/Getty
Sepp Blatter, fráfarandi forseti FIFA og Michel Platini, fráfarandi forseti UEFA, varð ekki mikið ágengt í áfrýjun sinni vegna bann frá allri aðkomu að knattspyrnu næstu árin.

Sepp Blatter og Michel Platini fengu niðurstöðuna frá Áfrýjunarnefnd FIFA í gær og þá kom í ljós að bannið stendur en verður sex ár í stað átta áður.  BBC segir frá.

Þessir fráfarandi forystumenn fótboltaheimsins ætla þó ekki að gefast upp heldur tilkynntu strax að þeir ætluðu að áfrýja dómnum áfram til Íþróttadómstólsins.

Blatter og Platini hafa báðir margoft lýst yfir sakleysi sínu en þeir voru dæmdir fyrir 1,3 milljón punda eingreiðslu Blatter til Platini skömmu fyrir eitt forsetakjör FIFA.

Þeir héldu því báðir fram peningagreiðslan hafi verið laun sem Platini átti inni fyrir ráðgjafastarf þegar hann starfaði fyrir FIFA eftir HM 1998. Blatter segist hafa verið að virða munnlegt samkomulag sitt við Platini.

„Ég er mjög vonsvikinn með Áfrýjunarnefnd FIFA," sagði hinn 79 ára gamli Sepp Blatter í tilkynningu.

Hinn sextugi Michel Platini talaði aftur um „móðgandi og skammarlega niðurstöðu" sem og að þetta hafi verið pólítísk ákvörðun.

Á föstudaginn kemur í ljós hver tekur við starfi forseta FIFA af Sepp Blatter en UEFA ætlaði ekki að boða til forsetakosninga fyrr en að Platini væri búinn að reka málið sitt alla leið.

Michel Platini var harðorður í sinni yfirlýsingu og talaði um hroka og ólögmæti sem og það að ásakanir á hendur honum væri algjörlega ósannar.

„Ég er fórnarlamb kerfis sem hafði aðeins eitt markmið sem var að koma í veg fyrir að ég yrði forseti FIFA," sagði Michel Platini í yfirlýsingu sinni.


Tengdar fréttir

Vill fresta forsetakjöri FIFA

Prins Ali, einn af forsetaframbjóðendunum hjá FIFA, hefur farið fram á það við íþróttadómstólinn að forsetakjöri FIFA verði frestað.

Blatter: Getur ekki keypt heimsmeistaramótið

Sepp Blatter, fyrrum forseti FIFA, segir að það sé algjört rugl að Katar hafi keypt sér atkvæði til að fá að halda heimsmeistaramótið árið 2022. Þetta segir Blatter í samtali við The Times.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×