Tónlist

Plata sem fjallar mest um ástina

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Berglind Ágústdóttir segir nýju plötuna fjalla mest um ástina.
Berglind Ágústdóttir segir nýju plötuna fjalla mest um ástina.
„Þetta er plata um ástina, von, vináttu, brostin hjörtu og löngun. Samt mest um ástina,“ segir listakonan Berglind Ágústsdóttir, sem sendir frá sér sína fjórðu sólóplötu sem nefnist I am your girl á morgun.

Berglind tók upp plötuna heima hjá sér en hún segir lögin öll vera mjög persónuleg. „Tónlistin á plötunni er ástar-, ópus-, tilraunakennd poppmúsík unnin í samvinnu við fjölmarga vini mína víðs vegar um heiminn,“ segir Berglind, sem opnar líka sýningu á föstudaginn í bókabúðinni Útúrdúr á Hverfisgötu.

Þar verða til sýnis nokkrar teikningar, litlar bækur, platan sjálf og vonandi nýtt myndband sem vinkona hennar er að klára í New York. „Ég er líka vinna kassettu sem kemur út sama dag með svona tilraunum sem ég geri ein. Kassettan verður líka á sýningunni.“

Berglind stígur á svið á morgun klukkan 17.30 í Hörpu á tónleikaröðinni Undiröldunni. Þar hitar hún upp fyrir hljómsveitina Vök sem nýverið vann Músíktilraunir. „Ég hlakka mikið til að hitta alla vini mína á tónleikunum og svo opna sýninguna beint eftir að þeim er lokið. Sævar vinur minn ætlar að spila plötur. Bara kósý og lítið og barnvænt.“










Fleiri fréttir

Sjá meira


×