Lífið

Plant segist ekki muna eftir ýkja mörgu frá upphafi áttunda áratugarins

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Liðsmenn Led Zeppelin segjast aldrei hafa heyrt lagið Taurus sem er vissulega keimlíkt Stairway to Heaven.
Liðsmenn Led Zeppelin segjast aldrei hafa heyrt lagið Taurus sem er vissulega keimlíkt Stairway to Heaven. Vísir/Getty
Eitt af athyglisverðari málum tónlistarsögunnar hvað ásakanir um lagastuld varðar er við því að ljúka. Meðlimir hljómsveitarinnar Led Zeppelin hafa verið dregnir fyrir dómstóla ásakaðir um að hafa stolið laginu Stairway to Heaven frá hljómsveitinni Spirit fyrir 45 árum síðan.

Söngvarinn Robert Plant og gítarleikarinn Jimmy Page hafa báðir mætt í vitnastúkuna til þess að verja sig en báðir segjast þeir ekki hafa þekkt lagið frá Spirit þegar þeir sömdu rokkslagarann ódauðlega. Randy Wolfe höfundur lagsins Taurus, sem Page og Plant eiga að hafa stolið frá Spirit, er látinn en ættingjar hans höfðuðu málið gegn Led Zeppelin.

Lenti í bílslysi sama kvöld og hann hitti lagahöfundinn

Saksóknarinn í málinu segir að Page og Plant hljóti að hafa þekkt lagið þar sem Jimmy Page og Robert Plant eiga að hafa kynnst liðsmönnum Spirit árið 1970 þegar hljómsveitirnar komu fram saman á tvennum tónleikum í Birmingham. Eftir tónleikana á Plant að hafa eytt kvöldstund með Wolfe.

Aðspurður um málið sagði Plant því miður ekki muna neitt eftir lagahöfundinum né eftir ýkja mörgu sem gerðist við upphaf áttunda áratug síðustu aldar. Það var mikið um hlátrasköll í réttarsalnum þegar Plant lét þau ummæli falla.

Sér til varnar bar Page fyrir sig að þetta sama kvöld hafi hann lent í bílslysi og fengið högg á höfuðið.

Greindi frá uppruna lagsins

Bæði Plant og Page þurftu að fara ítarlega í það hvernig lagið hafi orðið til, aðdáendum sveitarinnar til mikils fagnaðar, því það hafa þeir sjaldan gert.

Plant sagði að Page hefði spilað gítarlínuna fyrir sig yfir varðeldi og í kjölfarið hafi hugmyndir af melódíu og texta sprottið upp hjá sér. Hann hafi þá farið inn í hús til þess virkja sköpunarflæði sitt og komið til baka með textabrotið; „there is a lady who‘s sure all that glitters is gold, and she‘s buying a stairway to heaven.“

Lögfræðingur Led Zeppelin ber það til varnar sveitarinnar að hljómagangurinn í Stairway to Heaven sé frekar algengur og hafi oft verið notaður við lagasmíðar síðastliðin 300 ár.

Búist er við niðurstöðu í málinu fljótlega.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×