Fótbolti

Piteå vann Íslendingaslaginn | Margrét Lára skoraði

Eyþór Atli Einarsson skrifar
Margrét Lára skoraði í dag
Margrét Lára skoraði í dag
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði annað mark Kristianstad þegar liðið tapaði 3-2 gegn Hallberu Gísladóttur og stöllum í Piteå.

Margrét Lára og Hallbera spiluðu báðar allan leikinn fyrir sín lið en Sif Atladóttir byrjaði leikinn fyrir Kristianstad og var tekin út af á 66. mínútu.

Margrét Lára jafnaði metin á 30. mínútu 1-1 en Josefine Johansson hafði komið Pitea yfir á annarri mínútu leiksins. Josefine Johansson kom Piteå aftur yfir á 58. mínútu en Linnea Liljegärd jafnaði öðru sinni fyrir Kristianstad sex mínútum síðar. Josefine Johansson fullkomnaði síðan þrennuna og þar með sigurinn með marki á annarri mínútu í uppbótartíma.

Kristianstad er eftir leikinn í áttunda sæti deildarinnar með 20 stig eftir sautján leiki en Piteå fer í sjötta sætið með 21 stig eftir átján leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×