Fótbolti

Pirlo gefur áfram kost á sér | Balotelli ekki í hópnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Samband Conte og Pirlo þykir með eindæmum gott.
Samband Conte og Pirlo þykir með eindæmum gott. Vísir/Getty
Andrea Pirlo hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér í ítalska landsliðið.

Pirlo tilkynnti fyrir HM í Brasilíu að hann ætlaði að hætta með landsliðinu að mótinu loknu. En eftir að Antonio Conte var ráðinn landsliðsþjálfari virðist Pirlo hafa snúist hugur, en hann spilaði þrjú tímabil undir stjórn Conte hjá Juventus.

Pirlo getur hins vegar ekki verið með þegar Ítalía mætir Hollandi og Noregi á næstu dögum vegna meiðsla í mjöðm. Pirlo gæti aftur á móti verið orðinn klár þegar Ítalía mætir Aserbaídsjan og Möltu í næsta mánuði.

Balotelli hlaut ekki náð fyrir augum nýja landsliðsþjálfarans.Vísir/Getty
Conte valdi Mario Balotelli, leikmann Liverpool, ekki í hópinn sem mætir Hollandi og Noregi. Þjálfarinn þvertók fyrir það hann væri að senda framherjanum óstýrláta einhver skilaboð með því að velja hann ekki í hópinn.

„Við völdum hópinn út frá því sem við höfum séð til leikmannanna,“ sagði Conte eftir að hópurinn var tilkynntur.

„Eru þetta skilaboð? Ég þarf ekki að senda nein skilaboð. Þeir sem þekkja mig vita hvernig ég vinn - það er enginn sem fær neitt ókeypis hjá mér.“

Ítalski hópurinn er annars þannig skipaður:

Markverðir: Gianluigi Buffon (Juventus), Daniele Padelli (Torino), Mattia Perin (Genoa), Salvatore Sirigu (PSG).

Varnarmenn: Davide Astori (Roma), Christian Maggio (Napoli), Leonardo Bonucci (Juventus), Giorgio Chiellini (Juventus), Mattia De Sciglio (Milan), Angelo Ogbonna (Juventus), Andrea Ranocchia (Inter), Matteo Darmian (Torino), Manuel Pasqual (Fiorentina).

Miðjumenn: Antonio Candreva (Lazio), Daniele De Rossi (Roma), Alessandro Florenzi (Roma), Emmanuele Giaccherini (Sunderland), Claudio Marchisio (Juventus), Marco Parolo (Lazio), Andrea Poli (Milan), Marco Verratti (PSG).

Framherjar: Mattia Destro (Roma), Stephan El Shaarawy (Milan), Sebastian Giovinco (Juventus), Ciro Immobile (Borussia Dortmund), Fabio Quagliarella (Torino), Simone Zaza (Sassuolo).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×