Viðskipti innlent

Pírati að leggja lokahönd á heimildarmynd um matarsóun

sæunn gísladóttir skrifar
Sigríður Bylgja hefur gaman af ferðalögum og lærði meðal annars að kafa í Belís í Mið-Ameríku.
Sigríður Bylgja hefur gaman af ferðalögum og lærði meðal annars að kafa í Belís í Mið-Ameríku. Fréttablaðið/Anton Brink
„Þetta leggst virkilega vel í mig, Píratar eru stór flokkur og eiga mikið inni fyrir næstu alþingiskosningar þannig að ég hlakka til að koma að starfinu og innra skipulagi, það er rosalega mikið að gera í innra skipulaginu,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir sem tók við starfi framkvæmdastjóra Pírata á dögunum.

Um þrjátíu umsækjendur sóttu um stöðuna. Framkvæmdaráð samþykkti einróma að ráða Sigríði Bylgju sem framkvæmdastjóra.

„Í forgangi hjá mér er að fara og kynnast aðildarfélögunum og félögum sem eru í Pírötum og eru mjög virkir í innra starfinu. Fara meðal annars í heimsóknir til aðildarfélaganna okkar úti á landi og styrkja tengsl við landsbyggðina. Það er algjört forgangsatriði. Sýna mig og sjá aðra svo að fólk geti leitað til mín og ég geti miðlað,“ segir hún.

Sigríður Bylgja er með BA-gráðu í HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði) frá Háskólanum á Bifröst og M.Sc. í mannvistfræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð

„Mannvistfræði er tiltölulega nýtt nám. Þetta er mjög þverfaglegt nám þar sem áherslan er svolítið á valddreifingu, sjálfbærni og umhverfismál. Þetta er gagnrýnin samfélagsrýni getum við sagt,“ segir hún.

Sigríður Bylgja hefur komið víða við á ferlinum. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Starfsgreinasambandi Íslands og Landvernd. Hún hefur einnig starfað hjá utanríkisráðuneytinu og Saga Fest. „Ég hef gaman af öllu sem viðkemur mannlegum samskiptum, og það er svo fjölbreytt í hverju það getur falist,“ segir hún.

Sigríður Bylgja er handritshöfundur og er að leggja lokahönd á framleiðslu heimildarmyndarinnar Use Less í samstarfi við Vesturport og Vakandi. „Heimildarmyndin fjallar um matar- og tískusóun og er gagnrýni á neysluhyggjuna í því samfélagi sem við búum í. Hún er á ensku og er hugsuð fyrir íslenskan og alþjóðlegan markað.“

Maki Sigríðar Bylgju er Ingólfur Þorsteinsson matreiðslumaður. Helstu áhugamál hennar eru veiði og sund og ferðalög almennt. Sigríður Bylgja segir sérstaklega eftirminnilega ferð þegar hún var í starfsnámi um tíma í Belís í Mið-Ameríku og fór og lærði köfun í frægum neðansjávarhelli undan ströndum Belís sem nefnist Bláa hol­an.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×