Innlent

Píratar um viðræðuslitin: „Mikil vonbrigði að ekki hafi orðið af þessu sögulega tækifæri“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Stjórnarmyndunarviðræðum formanna fimm flokka verður framhaldið á Alþingi í dag.
Stjórnarmyndunarviðræðum formanna fimm flokka verður framhaldið á Alþingi í dag. vísir/stefán
Píratar segja það „mikil vonbriði að ekki hafi orðið af þessu sögulega tækifæri til að mynda frjálslynda umbótastjórn,“ eftir að upp úr slitnaði í viðræðum á milli VG, Viðreisnar, Bjartrar framtíðar, Samfylkingar og Pírata fyrir stundu.

Í yfirlýsingu frá Pírötum segir að flokkurinn hafi tekið þátt í viðræðunum af fullum heilindum. Þar segir jafnframt að ekkert af áherslumálum Pírata hafi staðið í vegi fyrir stjórnarmyndun.

„Ferli fyrir innleiðingu nýrrar stjórnarskrár var vel tekið. Réttlát dreifing á arði af auðlindum var vel hægt að ná samstöðu um. Enginn hefur sett sig á móti endurreisn heilbrigðisþjónustu, eflingu aðkomu almennings að ákvörðunartöku, að tækla spillingu og því að endurvekja traust á Alþingi. Ekkert af þessum áherslumálum Pírata stóð í vegi fyrir stjórnarmyndun.“

Þá hrósa Píratar Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, fyrir verkstjórn sína í viðræðum. Segja Píratar að vinna viðstjórnarmyndun haldu áfram og traust þeirra á þekkingu og innsæi forseta Íslands til að taka næstu skrefa sé mikið.

Yfirlýsing þingflokks Pírata í heild sinni

„Píratar hafa af fullum heilindum og samstarfsvilja tekið þátt í stjórnarmyndunarviðræðum. Það eru mikil vonbriði að ekki hafi orðið af þessu sögulega tækifæri til að mynda frjálslynda umbótastjórn.

Stefnumálum Pirata var fyrir kosningar skipt upp í áherslumál og framtíðarsýn, ásamt því að málefni sem kosið er um og tilheyrandi greinargerðir eru aðgengilegar almenningi. Það er ánægjulegt að okkur hafi tekist að vinna að málamiðlunum án þess að þurfa að gefa afslátt af áherslumálum Pírata.

Tilraunir til að þyrla upp ryki og skapa óvissu um stefnumál sem ekki voru sett á oddinn fyrir kosningar hafa verið áhugaverðar, en það var aldrei ætlun Pírata að láta stefnumál byggð á ákvæðum nýrrar stjórnarskrár koma í veg fyrir samstarf við aðra flokka í stjórnarmyndun.

Ferli fyrir innleiðingu nýrrar stjórnarskrár var vel tekið. Réttlát dreifing á arði af auðlindum var vel hægt að ná samstöðu um. Enginn hefur sett sig á móti endurreisn heilbrigðisþjónustu, eflingu aðkomu almennings að ákvörðunartöku, að tækla spillingu og því að endurvekja traust á Alþingi. Ekkert af þessum áherslumálum Pírata stóð í vegi fyrir stjórnarmyndun. Þetta er sérlega ánægjulegt í ljósi þess að niðurstöður kosninga hafa verið túlkaðar sem ákall um breiða samstöðu og samstarfsvilja þvert á hið pólitíska landslag.

Verkstjórn Katrínar Jakobsdóttur í þessari vinnu hefur verið til fyrirmyndar og vilja Píratar koma á framfæri þakklæti fyrir gott samtarf.

Vinnan við stjórnarmyndun heldur áfram og traust okkar er mikið á þekkingu og innsæi forseta Íslands til að taka næstu skref.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×