Innlent

Píratar stærsti flokkurinn í Reykjavík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Halldór Auðar Svansson, borgarfulltrúi Pírata.
Halldór Auðar Svansson, borgarfulltrúi Pírata. vísir/daníel
Píratar mælast nú stærstir stjórnmálaflokka í Reykjavík en þetta eru niðurstöður nýrrar Gallup-könnunar sem fyrirtækið vann fyrir Viðskiptablaðið. Flokkurinn mælist með 27,5 prósent fylgi og bæta fylgi sitt um meira en 20 prósent frá því í borgarstjórnarkosningum 2014. Þá hlutu Píratar 5,9 prósent fylgi og einn mann kjörinn í borgarstjórn.

Til stendur að fjölga borgarfulltrúum úr 15 í 23 til 31. Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins bendir flest til þess að þeim verði fjölgað í 23 og myndu Píratar þá fá sjö menn kjörna í borgarstjórn.

Má segja að þessi könnun sé í takt við þær fylgiskannanir sem birst hafa undanfarið þar sem kannað er fylgi flokka ef kosið yrði til Alþingis nú. Þar hafa Píratar nú um nokkurt skeið mælst stærstir stjórnmálaflokka.

Allir flokkarnir sem eiga fulltrúa í borgarstjórn tapa fylgi frá því í síðustu kosningum, nema Píratar og Vinstri grænir.

Sjálfstæðisflokkurinn þriðji stærsti flokkurinn

Samfylkingin, flokkur Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra mælist með 24,7 prósent fylgi í könnun Viðskiptablaðsins og er næststærsti flokkurinn. Samfylkingin hlaut 31,9 prósent atkvæða í borgarstjórnarkosningum sem gera fimm borgarfulltrúa. Þeir fengu nú sex fulltrúa af 23.

Sjálfstæðisflokkurinn tapar einnig fylgi frá því í kosningunum í fyrra. Hann er þriðji stærsti flokkurinn í borginni og mælist með 23,4 prósent fylgi en fékk 25,7 prósent atkvæða í kosningum og fjóra borgarfulltrúa. Flokkurinn myndi fá fimm fulltrúa af 23.

Björt framtíð fékk 15,6 prósent fylgi í síðustu kosningum en fengi nú 8,3 prósent. Flokkurinn er sá fimmti stærsti samkvæmt könnuninni og kemur á eftir öðrum tveggja samstarfsflokka sinna í borgarstjórn, Vinstri grænum. Björt framtíð myndi er nú með tvo borgarfulltrúa og fengi jafnmarga ef kosið yrði nú.

Þeir mælast fjórðu stærstir og bæta við sig tæpum þremur prósentustigum. Þeir fengu 11 prósent yrði kosið nú en fengu 8,3 prósent í borgarstjórnarkosningunum í fyrra og myndu fá tvo borgarfulltrúa af 23 en flokkurinn hefur einn fulltrúa nú.

Fylgi Framsóknar og flugvallarvina dalar svo og njóta þeir minnst fylgis. Þeir myndu 4,4 prósent atkvæða yrði kosið nú en fengu 10,7 prósent í síðustu kosningum og tvo fulltrúa kjörna. Þeir myndu missa annan þeirra samkvæmt könnuninni og fá einn fulltrúa af 23.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×