Innlent

Píratar ráku kosningastjóra vegna skoðanaágreinings

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, framkvæmnastjóri Pírata
Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, framkvæmnastjóri Pírata
Jóhann Kristjánsson, kosningastjóri Pírata, lét í gær af störfum. Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata, segir að ástæðan sé sú að ágreiningur hafi verið um framkvæmd kosningabaráttunnar.

„Nú er grasrótin tekin við og það er búið að skipa kosningastjórn,“ sagði Sigríður Bylgja jafnframt. Jóhann tekur undir skýringar Sigríðar Bylgju. „Það var smá ágreiningur um það hvaða leiðir við myndum fara í þessari kosningabaráttu.“ 

Jóhann segir uppsögnina ekki tengjast þeim ágreiningi sem varð um val á lista í Norðvesturkjördæmi Á fésbókarsíðu sinni segist Jóhann að framkvæmdastjóri og framkvæmdaráð Pírata hafi óskað eftir því að hann segði upp störfum.

Hann segir jafnframt að ný skoðanakönnun sýni flokkinn stærsta stjórnmálaflokk landsins ásamt Sjálfstæðisflokknum, en hvor flokkur um sig mælist með 22,7 prósent fylgi. 

Jóhann Kristjánsson.
„Ég kýs að nota skoðanakannanir til að styðjast við hvernig hefur miðað, og auðvitað á endanum niðurstöður kosninganna sem endanlegan mælikvarða á árangur,“ segir hann.

Jóhann segir Pírata hafa náð að halda sjó gegnum erfið prófkjör og stundum erfiðar innri umræður. Það segi sér að framboðið var á réttri leið. 

„Líklega er versta bakslagið sem upp hefur komið hjáseta þinghópsins við atkvæðagreiðslu búvörusamningsins. Þar á grasrótin sinn þátt að mínu mati,“ segir hann.

Jóhann hefur talsverða reynslu af störfum tengdum stjórnmálum. Hann var kosningastjóri Borgarahreyfingarinnar í alþingiskosningunum 2009 og varð síðar framkvæmdastjóri þingflokksins eftir kosningarnar.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Píratar ráða kosningastjóra

Jóhann Kristjánsson hefur verið ráðinn kosningastjóri Pírata fyrir væntanlegar kosningar til Alþingis í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×