Innlent

Píratar höfnuðu tillögu sem hefði opnað á Uber

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Píratar felldu tillögu í kosningakerfi sínu um að leyfa skuli akstur leigubifreiðar sem hlutastarf og að felldar skuli úr gildi takmarkanir á fjölda leigubíla. Þetta þýðir að Píratar hafa í raun lagst gegn starfsemi Uber á Íslandi.

Bandaríska hugbúnaðar- og leigubílafyrirtækið Uber hefur undanfarin tvö ár haft til skoðunar að hefja rekstur á Íslandi en fyrirtækið hefur notið gríðarlegra vinsælda í Bandaríkjunum og víðar. Uber kemur í nokkrum flokkum en lægsti flokkurinn heimilar í raun hverjum sem er að taka farþega gegn greiðslu svo lengi sem viðkomandi hefur verið samþykktur af Uber.

Píratar hafa verið að mælast sem stærsti eða næststærsti flokkur landsins í nýlegum könnunum. Stefna flokksins mótast rafrænt í sérstöku kosningakerfi á netinu. Á dögunum var kosið um tillögu um leigubifreiðar í kosningakerfinu en reglugerð um leigubifreiðar stendur starfsemi Uber fyrir þrifum hér á landi.

Í tillögunni sem var felld segir meðal annars: „Afnema skal takmörkun á fjölda leigubifreiða, þar sem slík takmörkun dregur úr samkeppni og atvinnufrelsi. (...) Leyfa skal akstur leigubifreiðar sem hlutastarf. Seinni efnisgrein 7. gr. reglugerðar um leigubifreiðar skal falla brott. (...) Afnema skal skyldu leigubílstjóra til að vera á skrá hjá bifreiðastöð með starfsleyfi. Afnema skal lágmarksfjölda atvinnuleyfishafa hjá bifreiðastöð.“

Þetta eru nákvæmlega þær reglugerðarbreytingar sem þurfa að eiga sér stað svo Uber geti starfað hér á landi. En þessi tillaga var felld í kosningakerfi Pírata með 52 atkvæðum gegn 40.

Bjartur Thorlacius tölvuforritari og meðlimur í Pírötum.365/Þorbjörn Þórðarson
Bjartur Thorlacius tölvuforritari er höfundur tillögunnar sem var felld.

„Tillagan sem ég lagði fram gengur út á að það sé auðveldara að stofna leigubílastöðvar. Núna er lágmarks fjöldi bifreiða hjá hverri leigubílastöð. Við viljum lækka eða afnema það lágmark þannig að hver sem er geti stofnað leigubílastöð. Það breytir öllu í starfsumhverfi leigubílstjóra að þeir geti hótað því að segja upp og hefja sinn eigin rekstur í stað þess að vera bundnir við einhverja ákveðna leigubílastöð,“ segir Bjartur. Hann segir að tillagan verði lögð fram aftur í breyttri mynd.

„Hinn almenni Pírati vildi ekki samþykkja tillöguna vegna þess að við höfðum ekki leitað álits hjá núverandi leigubílstjórum sem eru stór hagsmunahópur, þetta er þeirra lifibrauð. Það sem við ætlum að gera næst er að leita álits hjá núverandi leigubílstjórum og sjá hvort breytingarnar gagnist þeim ekki líka, svo breytingarnar gagnist öllum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×