Innlent

Píratar ætla ekki að leggja fram vantrauststillögu á nýja ríkisstjórn að sinni

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Einar Brynjólfsson gengur rösklega við hlið  Birgittu Jónsdóttur og Smára McCarthy
Einar Brynjólfsson gengur rösklega við hlið Birgittu Jónsdóttur og Smára McCarthy Vísir/Anton
„Auðvitað ræðum við þetta óformlega en við erum ekki búin að taka neina sérstaka ákvörðun um næstu skref,“ segir Einar Brynjólfsson þingmaður Pírata aðspurður hvort að rætt hafi verið á flokksfundi Pírata í dag sú hugmynd að lýsa yfir vantrausti á nýja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar. Menn eru, að sögn Einars, að kasta þessari  hugmynd á milli sín.

Einar nefnir að Píratar vilji hins vegar leyfa málum aðeins að þróast og nefnir hann að ef vantraust yrði sett fram yrði það líklega felt þar sem meirihluti sé á þingi.

„Við erum ekki að tala um að leggja fyrir vantrauststillögu á Alþingi sjálfu. Við erum ekki komin svo langt.“segir Einar og bendir í þessu samhengi á yfirlýsingu þingflokksins sem Vísir greindi frá fyrr í kvöld.

Sjá einnig: Píratar senda frá sér yfirlýsingu: „Í siðuðum lýðræðisríkjum er það kallað spilling þegar stjórnmálamenn beita opinberu embætti í þágu persónulegra og pólitískra hagsmuna“

Þar kom meðal annars fram að Píratar hvettu umboðsmann Alþingis að skoða hvort að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hafi í raun brotið gegn siðareglum ráðherra með því að vera ónákvæmur í svörum varðandi skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum. 

„Þetta snýst ekki um það að við vantreystum ekki Bjarna Benediktssyni og hans fólki. Þetta snýst ekki um það. Þetta snýst um raunhæfa möguleika og við þurfum ekki að vera með upphrópanir á torgum úti. Við erum hneyksluð. Við höfum sagt það og sýnt oftsinnis í okkar málflutningi þegar svona mál hafa borið á góma,“ segir Einar.


Tengdar fréttir

Viðreisnarfólk óánægt með Bjarna

Flokksmenn Viðreisnar létu í ljós óánægju sína með Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, sem sakaður hefur verið um að hafa setið á skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum fram yfir kosningar, á fundi þeirra í Ármúla í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×