Matur

Piparperlutoppar og saltaðar karamellusmákökur

Hátíðarstund er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum.
Hátíðarstund er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum.
Fyrsti þáttur af Hátíðarstund með Rikku fór í loftið á Stöð 2 í síðustu viku.

Í þáttunum einblínir Rikka á jólastemmninguna. Þættirnir eru sambland af girnilegum matreiðsluþætti með jólaskreytingarívafi og hátíðlegum jólaundirbúningi og verða alls fjórir talsins.

Þátturinn er stútfullur af öllu því helsta sem viðkemur þvi að halda gleðilega jólahátið. Rikka fær til sín gesti sem elda áramótarkalkúninn, hnetusteik, baka smákökur og fara yfir veisluhöld um hátíðarnar. Einnig verður sýnt hvernig aðventukrans er skreyttur á einfaldan og fallegan máta sem og jólatré verður skreytt.

Í fyrsta þætti gerði Rikka meðal annars piparperlutoppa og saltaðar karamellusmákökur en uppskriftirnar má finna hér fyrir neðan.

Piparperlutoppar

3 eggjahvítur

150 g púðursykur

3/4 tsk kanill

100 g piparperlur, saxaðar

Hitið ofninn í 160°C. Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið púðursykrinum smám saman út í. Handhrærið kanilinn og piparperlurnar saman við.

Setjið marensinn í sprautupoka og sprautið toppa á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið í 17-20 mínútur. Kælið toppanna í ofninum.



Saltaðar karamellusmákökur (20 stk)

Smákökur:

250 g dökkt súkkulaði, saxað

3 msk smjör

2 egg

120 g sykur

1 tsk vanilludropar

60 g hveiti

1/4 tsk lyftiduft



Krem:

250 g smjör

500 g flórsykur

1/4 tsk salt

85 g tilbúin karamella



Smákökur:

Hitið ofninn í 200°C. Bræðið súkkulaðið ásamt smjörinu yfir vatnsbaði. Hrærið egg, sykur og vanilludropa saman þar til að blandan verður ljós og létt. Bætið hveiti, lyftidufti og bræddu súkkulaðiblöndunni saman við og hrærið saman. Mótið litlar kúlur með teskeið og raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið í 8-10 mínútur. Kælið.



Krem:

Hrærið smjörið upp og bætið flórsykrinum smám saman út í ásamt saltinu. Hrærið karamellunni saman við og smyrjið kreminu á milli smákakanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×