Viðskipti innlent

Piparkroppið fær að lifa

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Piparfíklar landsins geta heldur betur tekið gleði sína á ný. Piparhúðað Nóa Kropp kom á markað fyrr í sumar og var auglýst í takmörkuðu magni.

Eftir gríðarlega góðar viðtökur var ákveðið að blása til kosningar þar sem Íslendingar gátu ráðið örlögum Piparhúðaða Nóa Kroppsins.

Þjóðin hefur kosið og mun hið geysivinsæla piparhúðaða Nóa Kropp haldast markaði. 99,6% þeirra sem greiddu atkvæði á samfélagsmiðlum Nóa Sirius vildu halda í piparhúðaða hnossgætið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×