Matur

Piparkökukaka með hlynsírópskremi - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Piparkökukaka með hlynsírópsk remi

 
Kakan

115 g mjúkt smjör

2/3 bolli púðursykur

1 egg

1/3 bolli melassi eða þykkt síróp

1 2/3 bolli hveiti

1/2 tsk matarsódi

1 tsk engifer

1/2 tsk kanill

1/4 tsk negull

1/4 tsk múskat



Kremið

115 g smjör

1 bolli púðursykur

1/4 bolli mjólk

1 tsk vanilludropar

1/4 bolli hlynsíróp

3 bollar flórsykur



Blandið saman smjöri og púðursykri. Bætið eggi við og sírópi og blandið vel saman. Blandið restinni af hráefninu saman í annarri skál. Blandið því varlega saman við smjörblönduna. Setjið í ílangt form og bakið við 175°C í 18 til 22 mínútur. Kælið og gerið svo kremið.

Bræðið smjörið yfir miðlungshita og bætið púðursykrinum við. Leyfið blöndunni að sjóða í eina mínútu og hrærið stanslaust í henni. Takið hana af hitanum og hrærið mjólk, vanilludropum og sírópi saman við. Setjið blönduna í stóra skál og blandið flórsykrinum saman við. Skreytið kökuna með kreminu og njótið.

Fengið hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×