Lífið

Pierce Brosnan eignast sitt þriðja barnabarn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pierce Brosnan varð á dögunum afi í þriðja sinn en Sean Brosnan, sonur hans, og eiginkona hans Sanja Banic eignuðust þá stúlkubarn.

Pierce birtir mynd af stúlkunni á Instagram síðu sinni en þar sést pabbinn haldandi á barninu. Hann skrifar við myndina:

„Drengurinn minn með stúlkuna sína Marley May Cassandra. Þvílík gleði að vera afinn hennar.“

Pierce er 62 ára gamall og átti fyrir tvö önnur barnabörn, þau Isabella og Lucas.

My darling Sean With his baby girl Marley May Cassandra what utter joy to be her grandpa...beautiful life

A photo posted by Pierce Brosnan (@piercebrosnanofficial) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×