Pierce: Ég er besti leikmaður í heimi 1. ágúst 2008 22:15 NordcPhotos/GettyImages
Paul Pierce, verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna í NBA deildinni, var ekki lengi að hugsa sig um þegar hann var spurður hvort Kobe Bryant væri besti körfuboltamaður heimsins á dögunum. Pierce sat fyrir svörum í spænsku blaði á dögunum og vildi þá meina að hann sjálfur væri besti leikmaður heims. "Það er þunn lína milli þess að hafa trú á sjálfum sér eða vera hrokafullur. Ég fer ekki yfir þessa línu, en ég hef mikla trú á sjálfum mér," sagði framherjinn, sem lék eins og engill í lokaúrslitunum gegn LA Lakers þar sem Boston hafði 4-2 sigur. "Fólki finnst ég kannski hrokafullur en ég hef spilað á móti þeim bestu og og mér finnst ég vera sá besti í augnablikinu," sagði Pierce. Hann var spurður hvort ummæli hans væru skot á Kobe Bryant. "Alls ekki. Ég hefði svarað þessari spurningu eins óháð því hvaða leikmaður ætti í hlut," sagði Pierce. Hann vill meina að betra liðið hafi unnið í úrslitarimmunni í júní sl. "Lakers liðið er frábært en ég held að það hafi einfaldlega mætt ofjörlum sínum í úrslitunum. Þeir voru með verðmætasta leikmanninn og lögðu besta lið Vesturdeildarinnar, en í úrslitunum mættu þeir betra liði. Lakers liðið verður áfram mjög gott og kannski mætum við þeim bara aftur í úrslitunum," sagði Pierce.
NBA Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóskassann Fótbolti Dagskráin: Íslensku strákarnir mæta Messi og félögum Sport Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Fleiri fréttir Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Sjá meira