Fótbolti

Piatti sá um Alfreð og félaga | Sjáðu mörkin

Heimamenn fagna.
Heimamenn fagna. vísir/afp
Pablo Piatti sá um Real Sociedad á Estadio Mestalla í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrn í dag. Lokatölur urðu 2-0, en mörkin tvö komu á þriggja mínútna kafla í síðari hálfleik.

Staðan var markalaus í hálfleik, en þegar 53. mínútur voru liðnar kom fyrsta markið. Argentínumaðurinn Pablo piatti skoraði þá og hann var aftur á ferðinni þremur mínútum síðar. Staðan skyndilega orðin 2-0.

Sociedad-menn náðu ekki að minnka muninn, en Alfreð Finnbogason kom inná sem varamaður á 79. mínútu. Hann náði ekki að minnka muninn fyrir Sociedad og lokatölur 2-0.

Valencia komst með sigrinum upp að hlið Atletico Madrid í þriðja til fjórða sætinu, en Atletico leikur við Sevilla síðar í dag. Sociedad er í ellefta sæti með 27 stig.

1-0: 2-0:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×