Phillip Cocu gerði PSV Eindhoven að hollenskum bikarmeisturum í dag aðeins 28 dögum eftir að þessi fyrrum landsliðsmaður Hollendinga tók við liðinu. PSV vann Heracles Almelo 3-0 í bikarúrslitaleiknum.
Phillip Cocu, sem er einnig aðstoðarþjálfari Bert van Marwijk hjá hollenska landsliðinu, tók við liðinu af Fred Rutten sem var rekinn í mars.
„Ég lít ekki svo á að ég hafi náð þessum árangri einn því Rutten á sinn hluta í þessum bikar," sagði Phillip Cocu eftir leikinn.
Svíinn Ola Toivonen kom PSV í 1-0 á 31. mínútu, Belginn Dries Mertens bætti við öðru marki með skalla á 56.mínútu og skömmu síðar innsiglaði Jeremain Lens sigurinn með laglegri vippu.
Þetta var níundi bikarmeistaratitil PSV Eindhoven en jafnframt sá fyrsti síðan 2005.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
BÍ/Bolungarvík skellti Þrótti 2-1 á Torfnesvelli þegar liðin mættust í 1. deild karla í fótbolta í dag. BÍ/Bolungarvík er því eina liðið með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.
Meira
Fjölnir sótti stig á Akureyri þegar liðið sótti KA heim í 1. deild karla í fótbolta í Atli Már Þorbergsson jafnaði metin á síðustu mínútum leiksins.
Meira
Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao varð í kvöld spænskur bikarmeistari með Atlético Madrid en liðið vann þá 2-1 sigur á Real Madrid í framlengdum bikarúrslitaleik á Santiago Bernabéu.
Meira
Atlético Madrid er spænskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Real Madrid í framlengdum bikarúrslitaleik á Santiago Bernabéu í kvöld. Brasilíumaðurinn Miranda skoraði sigurmarkið á 98. mín...
Meira
Lotta Schelin, ein allra besta knattspyrnukona heims, hefur gert nýjan þriggja ára samning við franska félagið Olympique Lyon en hún hefur spilað með Lyon-liðinu frá 2008 og á um næstu helgi möguleika...
Meira
Mario Balotelli er kominn á Twitter. Loksins, segja sumir, enda notast hann við nafnið @finallymario. Hann á þó í vandræðum með að skipta um forsíðumynd á síðunni sinni.
Meira
Xavi, leikmaður Barcelona, er allt annað en sáttur með þá meðferð sem Iker Casillas, liðsfélagi hans úr spænska landsliðinu, fékk hjá Real Madrid á þessu tímabili. Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid,...
Meira
Anderlecht og Zulte-Waregem munu mætast í hreinum úrslitaleik um belgíska meistaratitilinn eftir sigur beggja liða í næstsíðustu umferð meistaraumspilsins í belgísku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Meira
Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Kristjánsson fögnuðu flottum útisigri í kvöld með félögum sínum í Start en liðið vann þá 1-0 sigur á Odd. Þetta var fyrsti deildarsigur Start í sex leikjum eða síðan...
Meira
Arnór Smárason er loksins laus við meiðslin og skoraði tvö mörk fyrir Esbjerg í 6-2 sigri á Odense í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Íslendingaliðin SönderjyskE og Randers unnu bæði sína le...
Meira
Guðmundur Þórarinsson skoraði frábært mark beint úr aukaspyrnu í 2-4 tapi Sarpsborg 08 á móti Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Guðmundur jafnaði metin í 2-2 en Rosenborg skoraði ...
Meira
Bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson var á skotskónum í 10. umferð norsku úrvalsdeildarinnar sem fram fór í dag en það varð jafntefli í báðum Íslendingaslögum dagsins.
Meira
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði tvö mörk og Mist Edvardsdóttir skoraði eitt þegar Avaldsnes vann 3-0 heimasigur á Klepp í norsku kvennadeildinni í kvöld. Þetta var annar sigur Avaldsnes í tímabilinu e...
Meira
Sir Alex Ferguson, fráfarandi knattspyrnustjóri Manchester United, hafði ekkert nema gott að segja um Jamie Carragher, varnarmann Liverpool, sem leggur skóna á hilluna frægu um helgina.
Meira
Chelsea varð í kvöld fyrsta enska liðið til að vinna Evrópudeildina síðan að keppnin var endurskírð 2009 og fyrsta enska liðið í tólf ár til að þess að vinna UEFA-bikarinn eða síðan að Liverpool vann ...
Meira
Forráðamenn kvennaliðs Olympique Lyon hafa boðist til þess að spila aftur undanúrslitaleik Lyon og Montpellier í franska bikarnum en Lyon vann leikinn í vítakeppni. Ein vítaspyrna leikmanna Montpellie...
Meira
Fótboltagolf hefur verið að ryðja sér til rúms víða en nýlega spreyttu fjórir leikmenn Real Madrid sig á bræðingi þessarar tveggja vinsælu íþrótta.
Meira
Mario Balotelli, framherji AC Milan, hefur ítrekað verið fórnarlamb kynþáttafordóma hjá stuðningsmönnum andstæðinganna síðan að hann snéri aftur til Ítalíu í janúarglugganum.
Meira
Branislav Ivanovic var hetja Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Amsterdam í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið með stórglæsilegum skalla á þriðju mínútu í uppbótartíma. Chelsea er því Evrópu...
Meira