Lífið

Pharrell grét hjá Oprah

Fór að gráta hjá Opruh
Fór að gráta hjá Opruh Vísir/Gettyimages
Tónlistarmaðurinn vinsæli Pharrell Williams var í viðtali hjá spjallþáttadrottningunni Oprah Winfrey á dögunum.

Þar talaði hann meðal annars um mikla velgengni lagsins Happy, sem hann samdi fyrir teiknimyndina Aulinn ég 2. Winfrey tók undir með kappanum og sýndi honum myndband af fólki frá öllum heimshornum að dansa við lagið.

Tónlistarmaðurinn varð svo hrærður að hann gat ekki annað en fellt tár og sagði við Winfrey: „Gat nú skeð að ég yrði einn af þeim sem táraðist í viðtali hjá þér.“

Á myndbandinu má finna innslag frá Íslandi en ekki er vitað hverjir eru að dansa þar í íslenskri náttúru. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×