Golf

PGA-mótaröðin hefst á ný um helgina

Bubba Watson verður í eldlínunni um helgina.
Bubba Watson verður í eldlínunni um helgina. Getty
PGA-mótaröðin fer aftur á stað seinna í þessari viku eftir langt frí yfir hátíðirnar en fyrsta mót ársins 2015 verður haldið á Kapuala vellinum á Hawaii og kallast það Hyundai Tournament of Champions.

Aðeins þeir sem sigruðu í móti á mótaröðinni á síðasta tímabili hafa þátttökurétt og því óhætt að segja að þátttakendalistinn sé sterkur en fyrrum Masters sigurvegarinn, Zach Johnson, sigraði á mótinu í fyrra.

Árið sem nú fer í hönd á PGA-mótaröðinni verður eflaust mjög skemmtilegt en margar spurningar hvíla á golfáhugamönnum um allan heim um hvort að Tiger Woods finni sitt gamla form eftir erfið meiðsli á árinu sem leið, hvort að Phil Mickelson geti enn barist reglulega við þá bestu, hvort að Rory McIlroy haldi áfram að sína yfirburði líkt og í fyrra, eða hvort einhver af þeim ungu og efnilegum kylfingum á borð við Patrick Reed,Rickie Fowler eða Jordan Spieth eigi eftir að halda áfram að taka framförum og vinna sig upp heimslistann.

Tournament of Champions hefst á föstudaginn og verður í beinni útsendingu frá klukkan 21:30 á Golfstöðinni, sem mun að sjálfsögðu halda áfram að sýna öll veglegustu golfmót heims á nýju ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×