Sport

Peyton Manning tilkynnir á morgun að hann sé hættur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Peyton Manning fagnar titlinum í síðasta mánuði.
Peyton Manning fagnar titlinum í síðasta mánuði. Vísir/Getty
Peyton Manning, einn besti leikstjórnandi allra tíma í ameríska fótboltanum, hefur tekið ákvörðun um að leggja skóna á hilluna en kappinn hefur boðað til blaðamannafundar á morgun.

Chris Mortensen á ESPN hefur þetta eftir heimildarmanni sínum sem þekkir vel til hjá Peyton Manning.

Síðasti leikur Peyton Manning var þegar hann leiddi til lið Denver Broncos til sigurs í Super Bowl í síðasta mánuði. Hann vann allt á ferlinum og er handhafi margra af eftirsóttustu metunum í NFL-deildinni.

Peyton Manning varð á dögunum NFL-meistari í annað skiptið á ferlinum en hann er sá leikstjórnandi sem hefur gefið flestar snertimarkssendingar (539) og náð flestum jördum með heppnuðum sendingum (71,940) í sögu NFL-deildarinnar.

Peyton Manning vann 186 leiki á ferli sínum og á þar metið ásamt Brett Favre en manning hafði áður tekið önnur met af Favre.

Peyton Manning spilaði fjórtán fyrstu tímabilin á ferlinum með Indianapolis Colts en missti af 2011-tímabilinu vegna hálsmeiðsla. Hann fór í aðgerð og óttast var að ferillinn væri á enda en svo var nú ekki.

Manning samdi við Denver Broncos eftir að hann kom til baka og átti frábært 2013-tímabil þar sem liðið komst alla leið í Super Bowl. Manning náði ekki alveg að fylgja því eftir síðustu tvö tímabilin sín en endar ferilinn sem NFL-meistari.

 

NFL

Tengdar fréttir

Fullkomin kveðjustund hjá Peyton?

Foli mætir gæðingi í 50. Super Bowl-leiknum sem fram fer í San Francisco á sunnudaginn. Ríður Peyton Manning út í sólarlagið sem meistari eða stimplar Cam Newton sig inn sem besti leikmaðurinn í NFL?

Peyton fór í Disneyland

"I´m going to Disneyland“ var vinsæl lína hjá bandarískum íþróttamönnum er þeir unnu stórviðburði. Minna hefur farið fyrir þessum frasa á síðustu árum.

Manning ætlar að hætta

Fullyrt að NFL-stjarnan Peyton Manning muni tilkynna fyrir lok vikunnar að hann sé hættur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×