Náttúruminjasafn
Sigurjón Jóhannsson
myndlistamaður og leikmyndahöfundur
Sigurjón Jóhannsson skrifar:
Perlan, eitt af höfuðkennileitum Reykjavíkurborgar, var upphaflega byggð sem útsýnis- og veitingastaður, þaðan sem sjá mátti vítt og breitt yfir og til allra átta. Sem slíkur áfangastaður hefur Perlan notið mikilla vinsælda og dregið að sér sæg gesta og ferðamanna allt frá opnun.
Hins vegar virðist rýmið undir útsýnisskífunni ekki hafa öðru hlutverki að þjóna en aðgenginu að útsýni og veitingum. Lofthæðin þarna er yfir 10 m og svæðið rammað inn af hitaveitugeymum Orkuveitunnar sem mynda við það ríflega 700 fm gólfflöt.
Upphaflega voru hugmyndir um að nota rýmið til samkomu- og viðburðahalds en minna hefur orðið úr því og húsið helst nýtt sem markaðs- og kynningartorg sem samrýmist varla þeim metnaði sem liggur að baki byggingunni.
Hvað mundi sóma sér betur í þessum húsakynnum en Náttúruminjasafn Íslands sem hefur verið á meiri og minni hrakhólum í liðlega hálfa öld, allt frá því að það var tekið niður í Safnahúsinu um miðja síðustu öld og sett undir Náttúrufræðistofnun sem skyldi annast sýningahaldið. Í fyrstu var opnuð sýning í húsakynnum hennar við Hlemm í 100 fm sal á 3. hæð árið 1968. Tuttugu árum síðar var ráðist í nýjar og auknar sýningar með opnun tveggja 100 fm sala á 3. og 4. hæð, auk stigagangs og kapp lagt á að koma upp vönduðum sýningum. Þetta var töluvert átak fyrir vísinda- og rannsóknarstofnun sem í eðli sínu gegnir öðru hlutverki en að standa fyrir almennu sýningarhaldi.
Ég er kunnugur þessari sögu vegna starfa minna að undirbúningi, hönnun og uppsetningu beggja þessara sýninga. Að auki gerði ég áætlanir um sýningu í ofangreindu rými í Perlunni sem átti að fylgja eftir sýningunum við Hlemm, en því miður varð ekkert úr því.
Sýningarnar við Hlemm voru teknar niður og komið fyrir í geymslum, en ný lög um Náttúruminjasafn samþykkt á Alþingi sem ég fagna, þar sem Safnið var gert að sjálfstæðri stofnun sem sýni og kynni íslenska náttúru í nánu samstarfi við aðrar stofnanir sem stunda náttúrurannsóknir s. s. Hafrannsóknastofnun, Veðurstofu, Orkustofnun, Náttúrufræðistofnun og háskólana.
Þörfin fyrir heppilegt húsnæði fyrir Náttúruminjasafn verður brýnni með hverju árinu sem líður og jafnframt vandræðalegri með sívaxandi ferðamannastraumi.
Í Perluna kemur árlega þorri þeirra ferðamanna sem til landsins koma. Hún er eitt af helstu kennileitum Borgarinnar og útsýnisstaður.
Væri nokkuð heppilegra en að þessi útsýnisstaður byði upp á sýningarhald um náttúru landsins og jarðfræði, grundvöll þeirrar sjálfbæru orku sem við erum svo hreykin af. Hér mætti koma fyrir tilkomumiklum sýningum á helstu þáttum íslenskrar náttúru, s. s. lífríki sjávar, fuglabyggð og varpstöðvum, eldvirkni, gosstöðvum o.s.frv. Með þessu móti mundi miðrýmið öðlast hlutverk ekki ósvipað því sem Ráðhúsið hefur áunnið sér með Íslandslíkaninu sem er gott dæmi um sýningarhald sem hefur tekist vel.
Um tíu ára bil hefur Sögusafnið verið til húsa í Perunni og sýnt svipmyndir frá sögu þjóðarinnar og bókmenntum, vinsæll og fjölsóttur ferðamannastaður sem með áunninni reynslu og árangri ætti að vera öðru sýningarhaldi hvatning og lyftistöng, hljóti þessar hugmyndir brautargengi sem hér eru til umfjöllunar og hafa komið fram af og til frá því fyrir aldamót. Með því að taka Perluna undir Náttúruminjasafn mætti leysa tilvistarvanda Náttúruminjasafns, nýta reynslu Sögusafnsins, halda Perlunni í opinberri eigu og styrkja áform um Öskjuhlíð sem öflugt útivistarsvæði.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Í vikunni bárust a.m.k tvær jákvæðar fréttir sem tengjast áherslum Íslands í velferðarmálum. Báðar fréttirnar sýna að viðbrögð okkar við hruninu hafi verið félagslega meðvituð og árangursrík á sviði v...
Meira
Framganga SÍ og velferðarráðuneytisins vegna nýrrar lagasetningar og reglugerðar um greiðsluþátttöku SÍ á lyfjum hefur verið ótrúleg, svo ekki sé meira sagt.
Meira
Um þessar mundir er í kynningu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landsímareit í Kvosinni í Reykjavík. Samkvæmt henni má reisa hús í Kirkjustræti, á bílastæðinu andspænis hinum gömlu húsum Alþingis
Meira
Það er komið að lokapunktinum hjá nemendum mínum á þessari önn: lokapróf. Ég stend og horfi yfir hópinn á þessa einstaklinga sem ég hef fengið að kynnast eina önn....
Meira
Í síðustu viku átti sá fréttnæmi atburður sér stað að einn frægasti og merkasti stjarneðlisfræðingur nútímans, Stephen Hawking, tók þá pólitísku ákvörðun að sniðganga ráðstefnuna ”The Israeli Pr...
Meira
Undanfarið hefur verið nokkur umfjöllun um náttúruvernd á Reykjanesskaga og er það mjög ánægjulegt. Grindavíkurbær er landmesta sveitarfélagið á Reykjanesi og eru margar af perlum svæðisins innan skip...
Meira
Árið 1992 undirrituðu Íslendingar Ríó-sáttmálann um að sjálfbær þróun yrði höfð í hávegum, rányrkja lögð af og náttúran látin njóta vafans. Undirritun okkar hefur reynst marklaus og ekki pappírsins vi...
Meira
Talið er að tólf hundruð íslenskar konur beri með sér BRCA 2 genastökkbreytingu eins og Angelina Jolie. Hún komst í heimsfréttirnar í fyrradag þegar hún sagði frá því að hún hefði látið fjarlægja bæði...
Meira
Vefjagigt (e. fibromyalgia syndrome) er langvinnur fjölkerfasjúkdómur sem einkennist af útbreiddum stoðkerfisverkjum, þreytu og svefntruflunum. Að auki eru þeir sem þjást af vefjagigt oft með ýmis sta...
Meira
Á síðustu dögum hafa birst í fjölmiðlum greinar frá foreldrum þroskahamlaðra barna varðandi inntökureglur í Klettaskóla, fyrrum Öskjuhlíðarskóla. Í þessum greinum hafa ýmsar fullyrðingar verið settar ...
Meira
Það er gott þegar borgarar þessa lands hafa áhyggjur af því hvernig skattfé er varið. Vegagerðin sinnir hlutverki sínu með hagkvæmni að leiðarljósi og reynir eftir fremsta megni að nýta það fé sem er ...
Meira
Nú er í kynningu nýtt deiliskipulag á dýrmætum reit í hjarta borgarinnar, Landsímareitnum í Kvosinni. Ég skora á fólk að kynna sér það vel og senda inn athugasemdir á skipulag@reykjavik.is fyrir 23.ma...
Meira
Allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skulu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu (úr 3. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna). Ég á mér draum. Draum um samfélag sem býður öllum...
Meira
Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, skrifar drengilega grein í Fréttablaðið þar sem hún rekur jákvæðar einkunnir sem borgarstjórn fær í nýrri úttektarský...
Meira
Þegar ég hugsa um íslensk stjórnmál verður mér oft hugsað til þessa málsháttar. Nú eru kosningar nýafstaðnar og tveir flokkar fengu samtals meirihluta þingmanna. Það er eðlilegt að þessir flokkar hugs...
Meira
Á tímum óstöðugleika í efnahagsmálum verða Norðurlandaríkin að fjárfesta til framtíðar. Þetta er skoðun norræna verkalýðssambandsins (NFS). Samstarfshefð norrænu ríkjanna er traust og nýtur alþjóðlegr...
Meira
Kolbrún Bergþórsdóttir vakti heldur betur upp umræðu á kaffistofum margra landsmanna þegar hún gagnrýndi einlæga aðdáendur Alex Fergusson í grein sinni "Gamall maður hættir í vinnu“ sem birtist ...
Meira
Fram undan eru tímar þar sem leysa þarf úr mikilvægum málum á hinum pólitíska vettvangi og afar brýnt er að það verði gert með þeim hætti að þjóðin fái ekki annan skell í ætt við þann sem hún fékk í o...
Meira
Ímyndaðu þér að fyrirtæki eða opinber stofnun sé manneskja úr holdi og blóði. Manneskja sem hefur sinn eigin karakter og hefur mótað lífsskoðanir sínar og viðhorf út frá reynslu og uppeldi.
Meira
Í liðinni viku vakti mál samkynhneigðs hælisleitanda frá Nígeríu athygli og hneykslan margra, en umsókn hans um hæli hér á landi hefur verði synjað án þess að hafa verið tekin til efnislegrar meðferða...
Meira
Þann 6. maí sl. voru birtar fréttir af máli hælisleitanda frá Nígeríu, Martin. Hann flúði Nígeríu vegna þess að hann er samkynhneigður. Martin hafði sótt um hæli á Ítalíu og eytt níu árum í óvissu áðu...
Meira