Fótbolti

Perez ætlar að halda í Zidane

Stefán Árni Pálsson skrifar
Zinedine Zidane er fjórði þjálfari Real Madrid á fjórum árum.
Zinedine Zidane er fjórði þjálfari Real Madrid á fjórum árum. vísir/getty
Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur samkvæmt erlendum fjölmiðlum ákveðið að halda Zinedine Zidane sem stjóra liðsins á næsta tímabili en hann tók við liðinum í janúar.

Perez mun vera ánægður með störf hans, en Zidane kom Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu og aftur í harða baráttu um spænska meistaratitilinn.

Aðeins munar einu stigi á Real Madrid og Barcelona sem situr á toppi deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×