Viðskipti erlent

Pepsi tekur fram úr Diet Coke

ingvar haraldsson skrifar
Coca Cola er enn mest seldi gosdrykkur Bandaríkjanna.
Coca Cola er enn mest seldi gosdrykkur Bandaríkjanna. vísir/ap
Meira var selt af Pepsi en Diet Coke í Bandaríkjunum á síðasta ári. Pepsi er því næst mest seldi gosdrykkurinn í Bandaríkjunum samkvæmt frétt BBC.

Coca Cola er enn mest seldi gosdrykkurinn vestanhafs. Sala á Diet Coke dróst hins vegar saman um 6,6 prósent.

Þá dróst sala á Diet Pepsi einnig saman um  5 prósent.

Heildarsala beggja fyrirtækja jókst á árinu.

Í frétt BBC er talið að ástæða samdráttar í sölu gosdrykkja með sætuefnum sé vegna aukins áhuga margra Bandaríkjamanna á heilbrigðum lífsstíl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×