Íslenski boltinn

Pepsi-mörkin: Varpar þetta myndskeið betra ljósi á sigurmark FH?

Steven Lennon skoraði sigurmark FH gegn ÍBV í leik liðanna á sunnudag en ekki er hægt að fullyrða að boltinn hafi farið allur inn fyrir marklínuna af sjónvarpsmyndum sem teknar voru.

Málið var tekið fyrir í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöldi og myndskeið sem tekið var upp á síma frá öðru sjónarhorni spilað.

„Manni sýnist hann vera inni samkvæmt þessu sjónarhorni, en sjónarhorn geta líkt blekkt,“ sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson, einn sérfræðinga þáttarins, í gær.

Það var aðstoðardómarinn Oddur Helgi Guðmundsson sem dæmdi að boltinn hafi farið inn fyrir línuna en fyrir tveimur árum var hann gagnrýndur fyrir að dæma tvö mörk af Breiðabliki í leik gegn Keflavík.

„Oddur Helgi er hugrakkur maður. Góður maður líka. En þetta virkar eins og þetta sé rétt hjá honum, sem er eins gott því þetta er risastór ákvörðun,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Myndskeiðið og umræðuna má sjá í spilaranum efst í fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×