Íslenski boltinn

Pepsi-mörkin | 13. þáttur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Engan bilbug virðist vera að finna á toppliðunum tveimur, FH og Stjörnunni, í Pepsi-deild karla í knattspyrnu.

Félögin hafa tekið þátt í undankeppni Evrópudeildarinnar undanfarnar vikur en eru enn ósigruð í deildinni. Þá vann Fjölnir sinn fyrsta sigur í tæplega þrjá mánuði með öruggum 4-1 sigri á Þór.

Sem fyrr má nú sjá styttri útgáfu af Pepsi-mörkunum hér á Vísis en þar fer Hörður Magnússon ásamt Reyni Leóssyni og Tómasi Inga Tómassyni yfir þrettándu umferðina í heild sinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×