Íslenski boltinn

Pepsi-mörk kvenna byrja í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Ólafsdóttir stýrir Pepsi-mörkum kvenna.
Helena Ólafsdóttir stýrir Pepsi-mörkum kvenna. Vísir
Í kvöld verður á dagskrá fyrsti þátturinn af Pepsi-mörkum kvenna en hann verður sýndur klukkan 21.00 á Stöð 2 Sport 2 HD.

Helena Ólafsdóttir stýrir þættinum en gestir hennar í kvöld verða Rakel Logadóttir, fyrrverandi landsliðskona og leikmaður Vals, og Þorkell Máni Pétursson, fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar og útvarpsmaður.

Þátturinn verður einnig sýndur samtímis á íþróttavef Vísis og svo aðgengilegur í heild sinni að þættinum loknum.

Það verður því nóg um að vera á Stöð 2 Sport í kvöld því klukkan 20.00 hefst leikur KR og Stjörnunnar í Pepsi-deild karla og Pepsi-mörkin að honum loknum. Pepsi-mörk kvenna verða sýnd á Stöð 2 Sport eftir karlaþáttinn, í opinni dagskrá.

Viðureign Vals og KR í 2. umferð Pepsi-deild kvenna verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 klukkan 19.05 á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×