Innlent

Peningarnir streyma til leikmanna og í sjóði KSÍ

Jakob Bjarnar skrifar
Peningar streyma nú í sjóði KSÍ og til leikmanna sjálfra.
Peningar streyma nú í sjóði KSÍ og til leikmanna sjálfra. Grafík/Birgitta
Sigurleikurinn gegn Englandi í gær færði KSÍ og leikmönnum íslenska landsliðsins 344 milljónir króna í aðra hönd.

Fréttablaðið fór ítarlega yfir fjármálahliðina nýverið, þá sem snýr að KSÍ. Liðið hefur nú þegar tryggt KSÍ og leikmönnum tvo milljarða sé litið til þess hvað hver leikur og áfangi gefur. Við það bætist að KSÍ fær ríflega milljarð króna með þátttöku einni á mótinu. Þetta fé kemur frá UEFA, og tengist að verulegu leyti sjónvarpsrétti.

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir veltu KSÍ tvöfaldast á þessu ári út af mótinu. „Fyrirkomulag UEFA er í stuttu máli þannig að við fáum átta milljónir evra fyrir þátttökuna en við berum allan kostnaðinn sjálfir við hana. Allt sem við gerum hér í Frakklandi er greitt af sambandinu og sá kostnaður er gríðarlegur.“

Ef svo fer að Íslandi takist að leggja Frakka bætast 550 milljónir við heildarsummuna. Og, menn þora varla að hugsa svo langt, en Íslendingar taka auðvitað bara einn leik í einu: Evrópumeistarar í fótbolta um 1.110 milljónir fyrir sigurleikinn og silfurverðlaunahafarnir um 688 milljónir króna.

Á móti kemur kostnaður vegna þátttökunnar, sem er verulegur. Og 300 milljónir renna til aðildarfélaga KSÍ. Þá er til staðar afrekskerfi fyrir leikmenn liðsins og þjálfara og rennur stór hluti þessara tekna til liðsins sjálfs. Leikmenn fengu í kringum tvær milljónir króna fyrir hvort jafntefli í riðlakeppninni og fjórar milljónir fyrir sigurinn á Austurríki. Fyrir leikinn gegn Englandi hafði því hver leikmaður fengið í kringum átta milljónir króna í sinn hlut. Allt þetta sem hér hefur verið nefnt eru beingreiðslur, en víst er að þetta eykur mjög virði hvers leikmanns, sem eru í töluvert betri aðstöðu til að semja við sín félagslið og möguleika í tengslum við risaauglýsingasamninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×